Arnaldur Arnarson gítarleikari leiðir masterklass fyrir gítarnemendur hjá tónlistardeild Listaháskólans fimmtudaginn 7.apríl kl. 17:00. 

Arnaldur mun einnig vera í hópi leiðbeinenda á tónleikamasterklass tónlistardeildar þriðjudaginn 5.apríl kl. 17.30. Allir áhugasamir eru velkomnir á báða viðburði!

Arnaldur Arnarson fæddist í Reykjavík árið 1959 og hóf gítarnám í Svíþjóð tíu ára að aldri. Hann lærði síðan í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar hjá Gunnari H. Jónssyni og lauk þar námi vorið 1977.  Hann stundaði framhaldsnám í Englandi og á Spáni, þar sem helstu kennarar hans voru Gordon Crosskey, John Williams, George Hadjinikos og José Tomás. Með sigri í XXI alþjóðlegu "Fernando Sor" gítarkeppninni í Róm 1992 og einleikstónleikum á Listahátíð í Reykjavík sama ár skipaði Arnaldur sér á bekk með fremstu tónlistarmönnum Íslands. Hann hefur margoft komið fram á Íslandi og haldið tónleika í Evrópu, Ástralíu, Bandaríkjunum og Suðurameríku. Arnaldur hefur um árabil kennt gítarleik og verið aðstoðarskólastjóri við Luthier Tónlistar- og dansskólann í Barcelona en hyggst starfa meira á Íslandi næstu misseri. Hann hefur haldið námskeið í tónlistarflutningi víða um heim og setið í dómnefndum í alþjóðlegum tónlistarkeppnum.