{"id":35646,"date":"2026-05-29T11:00:00","date_gmt":"2026-05-29T11:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/www.lhi.is\/?post_type=threads&#038;p=35646"},"modified":"2026-06-01T14:24:49","modified_gmt":"2026-06-01T14:24:49","slug":"astand","status":"publish","type":"threads","link":"https:\/\/www.lhi.is\/en\/thraedir\/thraedir-tolublad-11\/astand\/","title":{"rendered":"Condition"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<section style=\"--overlay-opacity: 30%; --overlay-bg: #000000;\" class=\"hero-section h1-lg  \" >\n\t<div class=\"container animation-child-elements\">\n\t\t\t\t\t<h1>Um tilur\u00f0 og tilh\u00f6gun t\u00f3nsm\u00ed\u00f0aa\u00f0fer\u00f0arinnar sem nefnd er Gl\u00f3sur Khallams<\/h1>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t<figure class=\"bg-visual\">\n\t\t\t\n\t\t\t\t\t\t\t\t\t\t<img decoding=\"async\" src=\"https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/threads.jpeg\" class=\"lazyload\" loading=\"lazy\" alt=\"\">\n\t\t\t\t\n\t\t\t<\/figure>\n\t<\/section>\n\n\n\n<div class=\"text-section txt-columns txt-content \"  >\n\t<div class=\"container\">\n\t\t<div class=\"row animation-child-elements animation-bottom\">\n\t\t\t<div class=\"col-md-12\">\n\t\t\t\t<p><strong>\u00c1stand: <\/strong><em>um tilur\u00f0 og tilh\u00f6gun t\u00f3nsm\u00ed\u00f0aa\u00f0fer\u00f0arinnar sem nefnd er Gl\u00f3sur Khallams<\/em><\/p>\n<p>Atli Ing\u00f3lfsson<\/p>\n<p><strong>\u00a0<\/strong><\/p>\n<p><strong>Skilti<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00dea\u00f0 er l\u00edkast til vonlaust a\u00f0 draga saman \u00ed eitt or\u00f0 hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er sem t\u00f3nlist sn\u00fdst um. Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur ger\u00f0i \u00e9g m\u00e9r eitt sinn a\u00f0 leik a\u00f0 reyna \u00fea\u00f0; \u00feetta var svona ofureinf\u00f6ldun sem gagn getur veri\u00f0 a\u00f0 varpa fram \u00e1 fyrirlestri, h\u00e6filega r\u00f6ng til a\u00f0 vekja umr\u00e6\u00f0ur, h\u00e6filega r\u00e9tt til a\u00f0 vera hlustendum innbl\u00e1stur.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Svona hlj\u00f3ma\u00f0i \u00fea\u00f0: \u00c9g skaut \u00e1 a\u00f0 \u00ed kring um 1913 hafi or\u00f0i\u00f0 <em>tj\u00e1ning \u2013 <\/em>eins og expressj\u00f3nisminn skilgreindi hugtaki\u00f0 \u2013 veri\u00f0 kjarninn, um 1953 kannski <em>formger\u00f0<\/em>, um 1983 hafi \u00feetta svo ekki lengur \u00e1tt vi\u00f0 og or\u00f0i\u00f0 <em>hlj\u00f3\u00f0<\/em> veri\u00f0 n\u00e6r lagi og t\u00f3nlistin veri\u00f0 umfram anna\u00f0 a\u00f0 kafa ofan \u00ed hlj\u00f3\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Svo reyndi \u00e9g a\u00f0 l\u00edta \u00ed eigin barm og \u00edhuga hvort \u00feetta \u00e6tti enn vi\u00f0 um m\u00edna t\u00f3nsm\u00ed\u00f0avinnu, a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri fyrst og fremst fer\u00f0alag inn \u00ed undraheima hlj\u00f3\u00f0sins. \u00de\u00e1 rann upp fyrir m\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi oft beint \u00feanga\u00f0 sm\u00e1sj\u00e1nni var \u00fea\u00f0 ekki kjarni sk\u00e1ldskaparins. \u00c9g er gjarnan uppteknari af \u00fev\u00ed sem getur af s\u00e9r hlj\u00f3\u00f0i\u00f0 og af samhengi \u00feess, enda finnst m\u00e9r a\u00f0 upplifun og skilningur hlustandans hlj\u00f3ti a\u00f0 vera h\u00e1\u00f0 \u00feessu tvennu.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Svo \u00e9g \u00fatsk\u00fdri \u00feetta sn\u00f6ggvast: \u00dea\u00f0 m\u00e1 vissulega setja \u00e1 svi\u00f0 og kryfja til d\u00e6mis fallegan dj\u00fapan t\u00f3n \u00ed fi\u00f0lu sem <em>hlj\u00f3\u00f0<\/em> og heg\u00f0un \u00feess en \u00e9g er gjarn \u00e1 a\u00f0 taka me\u00f0 \u00ed reikninginn t\u00f3nbilin fr\u00e1 n\u00e6stu t\u00f3num, svipm\u00f3t fi\u00f0luraddarinnar og afst\u00f6\u00f0u hennar til annarra atvika \u00ed verkinu. \u00c9g tel \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur vera \u00f3rj\u00fafanlegan hluta af upplifun hlj\u00f3\u00f0sins, og upplifun t\u00f3nverksins. \u00deessa hugmynd m\u00e6tti au\u00f0veldlega heimf\u00e6ra upp \u00e1 n\u00e6sts\u00ed\u00f0asta t\u00edmabili\u00f0 h\u00e9r a\u00f0 ofan, hina m\u00f3dern\u00edsku tr\u00fa \u00e1 <em>formger\u00f0<\/em>, ef ekki v\u00e6ri fyrir \u00e1kve\u00f0inn mun sem m\u00e9r tekst vonandi a\u00f0 l\u00fdsa \u00ed \u00fev\u00ed sem \u00e1 eftir fer.<a href=\"#_ftn1\" name=\"_ftnref1\">[1]<\/a><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00dea\u00f0 er \u00feannig a\u00f0 \u00e1 seinni \u00e1rum hefur m\u00e9r ekki n\u00e6gt \u00fea\u00f0 samr\u00e6mi sem efni t\u00f3nverksins myndar heldur hef \u00e9g fundi\u00f0 \u00fe\u00f6rf til a\u00f0 losa um, afbyggja e\u00f0a jafnvel framandgera t\u00f3nlistina. Margar lei\u00f0ir eru til \u00feess arna, en \u00fe\u00e6r hafa l\u00edklega allar eitthva\u00f0 a\u00f0 gera me\u00f0 \u00fe\u00e6r a\u00f0st\u00e6\u00f0ur sem t\u00f3nverki\u00f0 er sett \u00ed, e\u00f0a einhverjar innri a\u00f0st\u00e6\u00f0ur verksins. \u00cd stuttu m\u00e1li m\u00e1 kannski segja a\u00f0 \u00e9g leiti ekki a\u00f0 <em>formger\u00f0<\/em> e\u00f0a <em>hlj\u00f3\u00f0i<\/em>, heldur <em>\u00e1standi.<\/em> \u00dea\u00f0 er tilteki\u00f0 <em>\u00e1stand<\/em> sem gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 formger\u00f0 e\u00f0a hlj\u00f3\u00f0 getur hafist upp \u00e1 n\u00fdtt sk\u00e1ldskaparlegt \u00ferep. H\u00e9r segja \u00e1hrif leikh\u00fassins til s\u00edn. \u00dear er leiktextinn einn aldrei n\u00f3g, verki\u00f0 ver\u00f0ur til \u00feegar textinn f\u00e6r samhengi, myndar <em>\u00e1stand <\/em>e\u00f0a er hluti af \u00fev\u00ed<em>.<\/em><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><em>\u00c1stand. <\/em>\u00c9g varpa\u00f0i \u00feessu fram \u00e1 fyrirlestri og \u00fea\u00f0 f\u00e9ll \u00ed g\u00f3\u00f0an jar\u00f0veg. \u00deetta snerist reyndar ekki einungis um eigin sk\u00f6pun heldur \u00e1tti a\u00f0 l\u00fdsa h\u00e1ttum margra t\u00f3nsk\u00e1lda hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1r. Og r\u00e9tt eins og or\u00f0in <em>formger\u00f0<\/em> e\u00f0a <em>hlj\u00f3\u00f0<\/em> er merkingin h\u00e9r v\u00ed\u00f0 og \u00feetta skilti mikil einf\u00f6ldun. Me\u00f0al t\u00f3nsk\u00e1lda sem g\u00e6tu bori\u00f0 \u00fea\u00f0 m\u00e6tti kannski nefna svo \u00f3l\u00edka listamenn sem Alvin Lucier og Georges Aperghis fr\u00e1 fyrri d\u00f6gum e\u00f0a Cassandra Miller, Laurence Crane og Jennifer Walshe af \u00f6gn yngri h\u00f6fundum, en af h\u00e9rlendu hlj\u00f3\u00f0yrkjuf\u00f3lki er ekki \u00f6rgrannt um a\u00f0 Gu\u00f0mundur Steinn Gunnarsson, Einar Torfi Einarsson, \u00der\u00e1inn Hj\u00e1lmarsson e\u00f0a Bergr\u00fan Sn\u00e6bj\u00f6rnsd\u00f3ttir g\u00e6tu talist \u00ed n\u00e1grenni vi\u00f0 svona merki.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Framlei\u00f0slul\u00ednan<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Einhver svona hneig\u00f0 var a\u00f0 byltast um \u00ed m\u00e9r og haf\u00f0i s\u00edn \u00e1hrif \u00e1 \u00fdmis verk, en au\u00f0vita\u00f0 mest \u00ed t\u00f3nleikh\u00fasverkunum<a href=\"#_ftn2\" name=\"_ftnref2\">[2]<\/a>. \u00c1 sama t\u00edma \u00e1ger\u00f0ust \u00fdmsar huglei\u00f0ingar m\u00ednar um svi\u00f0setningu t\u00f3nlistar og hlutverk e\u00f0a raunar <em>erindi<\/em> flytjenda, og upplifun \u00e1heyrenda \u00e1 \u00fev\u00ed. \u00dea\u00f0 var \u00feessi tilfinning a\u00f0 hressa \u00feyrfti upp \u00e1 framlei\u00f0slul\u00ednu t\u00f3nlistarinnar, fr\u00e1 hugmynd, upp \u00far t\u00f3nsk\u00e1ldi, gegn um flytjanda og til afhendingar \u00ed eyru hlustanda. \u00deetta hefur raunar fj\u00f6ldi t\u00f3nlistarmanna veri\u00f0 a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugi.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Ofan \u00e1 \u00fea\u00f0 b\u00e6ttist a\u00f0 m\u00e9r var ekki \u00e1 m\u00f3ti skapi a\u00f0 hrista upp \u00ed eigin a\u00f0fer\u00f0um \u2013 \u00fea\u00f0 er hverjum listamanni hollt a\u00f0 reyna sl\u00edkt af og til svo ma\u00f0ur haldi n\u00fa \u00e1fram a\u00f0 f\u00e6\u00f0ast.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">M\u00e9r kvikna\u00f0i sem sagt grunur um a\u00f0 <em>\u00e1stand<\/em> v\u00e6ri \u00e1kve\u00f0i\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3s \u00ed m\u00f6rgum n\u00fdrri verka minna, fannst a\u00f0 n\u00fa \u00feyrfti \u00e9g a\u00f0 \u00f6gra sj\u00e1lfum m\u00e9r og j\u00e1tast \u00fev\u00ed afdr\u00e1ttarlaust. \u00c9g afr\u00e9\u00f0 a\u00f0 umturna a\u00f0fer\u00f0um m\u00ednum vi\u00f0 t\u00f3nsm\u00ed\u00f0ar, \u00fe\u00f3tt ekki v\u00e6ri nema um stundar sakir, h\u00f3f tilraunir, skissur og gl\u00f3sur, fer\u00f0a\u00f0ist \u00fat \u00ed vegleysur og hef ekki biti\u00f0 \u00far n\u00e1linni me\u00f0 \u00fea\u00f0 enn. En h\u00e9r fer \u00e1 eftir l\u00fdsing \u00e1 verkefninu sem af \u00feessu spratt.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Gl\u00f3sur Khallams: Uppdiktu\u00f0 forsaga<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Til \u00feess a\u00f0 reyna a\u00f0 st\u00edga \u00fat \u00far eigin s\u00f6gu, menningu og menntun og sj\u00e1 \u00feetta allt \u00far fjarl\u00e6g\u00f0 \u00edmynda\u00f0i \u00e9g m\u00e9r tiltekna fors\u00f6gu. \u00ddmsar \u00feenkingar heimspekinnar hefjast einmitt \u00e1 svona \u201ehva\u00f0 ef\u201c tilraunum. \u00c9g \u00edmynda\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 vel uppl\u00fdstur marokk\u00f3skur t\u00f3nlistarfr\u00e6\u00f0ingur, Azbet Khallam, hef\u00f0i kynnst mi\u00f0-evr\u00f3pskri t\u00f3nlist \u00ed kring um 1934, \u00feegar t\u00f3ntegundakerfi\u00f0 er fyrir nokkru or\u00f0i\u00f0 veikbur\u00f0a e\u00f0a horfi\u00f0 me\u00f0 \u00f6llu. Hann hef\u00f0i veri\u00f0 laus vi\u00f0 afturhaldssemi og hef\u00f0i hrifist af m\u00f6rgu sem hann heyr\u00f0i. Hann hef\u00f0i \u00fe\u00f3 komi\u00f0 auga \u00e1 tilteki\u00f0 vandam\u00e1l sem var\u00f0 til \u00feegar t\u00f3nlistin sag\u00f0i skili\u00f0 vi\u00f0 sk\u00fdra skiptingu efnisins \u00ed lagl\u00ednu, undirspil og bassa. Hann \u00e1kve\u00f0ur a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a nokkrum g\u00f3\u00f0um t\u00f3nlistarm\u00f6nnum, f\u00e9l\u00f6gum s\u00ednum, a\u00f0 hittast reglulega og gera tilraunir me\u00f0 eigin \u00fatg\u00e1fu af n\u00fdrri t\u00f3nlist sem ekki v\u00e6ri t\u00f3ntegundabundin.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1ri\u00f0 1936 kemur til hans \u00edtalskur sendifulltr\u00fai, forvitnast um hugmyndir hans og gl\u00f3sar hj\u00e1 s\u00e9r langt samtal \u00feeirra. \u00deetta eru Gl\u00f3sur Khallams sem hafa a\u00f0 geyma lauslegar sk\u00fdringar \u00e1 afst\u00f6\u00f0u t\u00f3nlistarfr\u00e6\u00f0ingsins og l\u00fdsingu \u00e1 \u00feeirri a\u00f0fer\u00f0 vi\u00f0 t\u00f3nsk\u00f6pun sem hann \u00fdtir \u00far v\u00f6r.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Vonandi er lesandinn ekki a\u00f0 tapa \u00feessum sk\u00e1lda\u00f0a \u00fer\u00e6\u00f0i, \u00fev\u00ed hann heldur \u00e1fram: Sj\u00e1lfur fer\u00f0ast \u00e9g til Marokk\u00f3 fyrir nokkrum \u00e1rum og \u00e1 gistih\u00fasi \u00ed Marrakech rekst \u00e9g \u00e1 snj\u00e1\u00f0 v\u00e9lritu\u00f0 bl\u00f6\u00f0 \u00ed m\u00f6ppu me\u00f0 \u00feessum gl\u00f3sum \u00e1 \u00edt\u00f6lsku. Hi\u00f0 sanna er a\u00f0 \u00fea\u00f0 var vissulega einn morgun \u00ed Marrakech sem \u00e9g fullm\u00f3ta\u00f0i \u00feessa hugmynd og skrifa\u00f0i ni\u00f0ur gl\u00f3surnar og l\u00edkti eftir bestu getu eftir \u00edt\u00f6lskum ritst\u00edl fr\u00e1 fyrri hluta 20. aldar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">D\u00e1l\u00edtill ritlingur \u00e1 \u00edt\u00f6lsku sem ber heiti\u00f0 Gl\u00f3sur Khallams er \u00fev\u00ed til, en \u00e9g er ekki alveg n\u00f3gu \u00fatsmoginn til a\u00f0 gera \u00far honum gullpl\u00f6tur a\u00f0 h\u00e6tti Josephs Smiths.<a href=\"#_ftn3\" name=\"_ftnref3\">[3]<\/a><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00dea\u00f0 dugar m\u00e9r a\u00f0 \u00feessi fr\u00e1s\u00f6gn var\u00f0 m\u00e9r a\u00f0fer\u00f0 til a\u00f0 losna vi\u00f0 m\u00e1lami\u00f0lanir. \u00deegar efasemdir komu upp gat \u00e9g alltaf sagt vi\u00f0 sj\u00e1lfan mig \u201e\u00feetta vandam\u00e1l skilur Khallam ekki, burt me\u00f0 \u00fea\u00f0\u201c. \u00dea\u00f0 er erfitt og \u00ed raun \u00f3\u00fearfi a\u00f0 svara \u00fev\u00ed a\u00f0 hversu miklu leyti \u00e9g er samm\u00e1la or\u00f0um Khallams h\u00e9r a\u00f0 ne\u00f0an; \u00feau l\u00fdsa \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta afst\u00f6\u00f0u sem h\u00e6gt er a\u00f0 r\u00f6ksty\u00f0ja og taka alvarlega.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Svo m\u00e1 b\u00e6ta \u00fev\u00ed vi\u00f0 a\u00f0 \u00feegar t\u00f3nsk\u00e1ld semur verk er \u00fea\u00f0 \u00ed raun alltaf a\u00f0 b\u00faa til pers\u00f3nu, k\u00f6llum hana \u201eskapandann\u201c, sem b\u00fdr s\u00ed\u00f0an til verki\u00f0. H\u00fan ver\u00f0ur til \u00far \u00feeim stellingum sem t\u00f3nsk\u00e1ldi\u00f0 setur sig \u00ed hverju sinni. Sk\u00fdrt d\u00e6mi um \u00feetta er a\u00f0 Beethoven samdi v\u00edst svo ger\u00f3l\u00edk t\u00f3nverk sem 5. og 6. sinf\u00f3n\u00edurnar um svipa\u00f0 leyti. H\u00f6fundurinn er Beethoven, en \u00fe\u00e6r eru greinilega afsprengi tveggja \u00f3l\u00edkra skapenda. Hugmyndin um Azbet Khallam er \u00fev\u00ed ekki svo fjarri venjulegri t\u00f3nsm\u00ed\u00f0avinnu. \u00dea\u00f0 eina sem h\u00e9r b\u00e6tist vi\u00f0 er a\u00f0 \u00feessi pers\u00f3na f\u00e6r s\u00e9rstaka athygli og nafn<a href=\"#_ftn4\" name=\"_ftnref4\">[4]<\/a>.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Gl\u00f3sur Khallams: \u00derj\u00fa hlutverk<\/strong><strong>\u00a0<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">N\u00fa g\u00f6ngum vi\u00f0 beint \u00ed a\u00f0 l\u00fdsa \u00feeirri a\u00f0fer\u00f0 sem Khallam stingur upp \u00e1.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Vi\u00f0 flutning t\u00f3nverks er flytjendum skipt \u00ed \u00ferj\u00e1 flokka. S\u00e9rhver flokkur hefur eitt afmarka\u00f0 hlutverk og heldur \u00fev\u00ed nokkra hr\u00ed\u00f0, e\u00f0a fram a\u00f0 kaflaskilum. Vi\u00f0 kaflaskil er s\u00ed\u00f0an oftast stokka\u00f0 upp \u00ed h\u00f3pnum og skipting flytjenda \u00ed flokka breytist.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">T\u00f3nlistin myndast vi\u00f0 samtal \u00feessara \u00f3l\u00edku hlutverka. Samkv\u00e6mt skilgreiningu Khallams eru \u00feau einungis \u00ferj\u00fa. Hvert \u00feeirra setur s\u00e9rst\u00f6k skilyr\u00f0i um hvernig ber a\u00f0 setja \u00fea\u00f0 saman, hvernig ber a\u00f0 t\u00falka \u00fea\u00f0 og hver afsta\u00f0a \u00feess er til hinna tveggja. Verki\u00f0 \u00fearf \u00fev\u00ed a\u00f0 semja me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af hlutverkunum \u00feremur.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hlutverkin fengu hvert sitt nafn \u00e1 arab\u00edsku. \u00deau eru sem h\u00e9r segir: 1) <em>Tadaris<\/em>, e\u00f0a landslagi\u00f0, 2) <em>lahen, <\/em>e\u00f0a r\u00f6ddin og 3) <em>hayat, <\/em>e\u00f0a kli\u00f0urinn.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Svo \u00feeim s\u00e9 l\u00fdst \u00f6rl\u00edti\u00f0 n\u00e1nar: <em>Tadaris<\/em> er \u00fea\u00f0 sem gefur kaflanum st\u00f6\u00f0ugleika. \u00dea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 vera h\u00e6filega fyrirsj\u00e1anlegt og gefa flytjendum eitthva\u00f0 til a\u00f0 standa \u00e1. \u00dea\u00f0 beinir sj\u00f3num fyrst og fremst a\u00f0 sj\u00e1lfu s\u00e9r og <em>lahen<\/em>, til a\u00f0 sty\u00f0ja \u00fea\u00f0. <em>Lahen<\/em>, er eins og r\u00f6ddin sem beinist a\u00f0 hlustendum. \u00deessi rulla er mun \u00f3reglulegri en <em>tadaris<\/em> og \u00fearf beinl\u00ednis a\u00f0 sannf\u00e6ra hlustandann um sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i sitt og frelsi, \u00fe\u00f3tt h\u00fan notf\u00e6ri s\u00e9r grunninn sem <em>tadaris <\/em>gefur. \u00deri\u00f0ja hlutverki\u00f0 er s\u00ed\u00f0an <em>hayat<\/em>, kli\u00f0urinn. \u00deetta er hlutverk sem opnar verki\u00f0 \u00fat \u00e1 vi\u00f0. \u00dea\u00f0 er fullkomlega \u00f3h\u00e1\u00f0 hinum tveimur, leikur ym e\u00f0a kli\u00f0, e\u00f0a jafnvel a\u00f0fengi\u00f0 efni. <em>Hayat<\/em> beinir sj\u00f3num a\u00f0 sj\u00e1lfu s\u00e9r og heiminum umhverfis. \u00dea\u00f0 l\u00e6tur gjarnan eins og grunnurinn hafi ekki \u00e1hrif \u00e1 \u00fea\u00f0, en er \u00ed raun a\u00f0 b\u00faa til eins konar hlj\u00f3\u00f0skyggingu sem skerpir \u00e1 \u00fatl\u00ednum hinna.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Svo vi\u00f0 dr\u00f6gum saman afst\u00f6\u00f0u \u00feessara \u00feriggja deilda \u00fe\u00e1 horfir ein fyrst og fremst \u00e1 hinar tv\u00e6r, \u00f6nnur horfir \u00e1 \u00fe\u00e1 fyrstu og \u00e1 \u00e1heyrandann en s\u00fa \u00feri\u00f0ja er upptekin af sj\u00e1lfri s\u00e9r og heiminum umhverfis. \u00deetta er d\u00e1l\u00edti\u00f0 eins og \u00feegar sami\u00f0 er leikrit og afsta\u00f0a \u00feriggja karaktera skilgreind fyrirfram, afsta\u00f0a sem leikarinn \u00fearf a\u00f0 t\u00falka.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deessi tilh\u00f6gun \u00e1 a\u00f0 tryggja a\u00f0 erindi s\u00e9rhvers flytjanda s\u00e9 sk\u00fdrt fyrir honum og jafnan fyrir \u00e1heyrendum l\u00edka, sambandi\u00f0 milli flytjenda lifandi og \u00fe\u00e1tttaka flytjenda virk og skapandi.<a href=\"#_ftn5\" name=\"_ftnref5\">[5]<\/a><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hugmyndin er s\u00ed\u00f0an a\u00f0 hlutverkaskiptingin haldist \u00f3breytt d\u00e1g\u00f3\u00f0a stund, e\u00f0a \u00ed heilan kafla t\u00f3nverksins. Hver kafli er hins vegar eins og d\u00e1l\u00edtill leikur \u00fear sem ekki er stefnt a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 byggja upp e\u00f0a \u00fer\u00f3a form. \u00dear \u00e1 bara a\u00f0 s\u00f6kkva s\u00e9r \u00ed r\u00edkjandi \u00e1stand. \u00c9g \u00e1\u00e6tla\u00f0i a\u00f0 \u00fea\u00f0 mundi geta af s\u00e9r kafla sem v\u00e6ru \u00ferj\u00e1r til fimm m\u00edn\u00fatur a\u00f0 lengd. Heildarformi\u00f0 v\u00e6ri s\u00ed\u00f0an r\u00f6\u00f0 \u00feannig kafla, sem \u00e9g f\u00f3r snemma a\u00f0 nefna <em>slagi.<\/em><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><strong>Gl\u00f3sur Khallams:\u00a0 T\u00f3nefni\u00f0 sj\u00e1lft<\/strong><strong><em>\u00a0<\/em><\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Ekki er a\u00f0 undra \u00fe\u00f3tt einhverjum s\u00fdnist l\u00fdsingin h\u00e9r a\u00f0 ofan minna \u00e1 g\u00f6mlu hugmyndina um bassa og rytmagrunn, undirspil e\u00f0a hlj\u00f3magang og s\u00ed\u00f0an lagl\u00ednu. Eitthva\u00f0 er skylt me\u00f0 \u00feessu og \u00feeim hlutverkum sem h\u00e9r var l\u00fdst og sannarlega ekki \u00f3\u00e6skilegt ef a\u00f0fer\u00f0 Khallams n\u00e6r a\u00f0 draga upp \u00e1m\u00f3ta einfalt vi\u00f0m\u00f3t. Hins vegar kemur munurinn sk\u00fdrt fram \u00feegar t\u00f3nefni\u00f0 sj\u00e1lft er sko\u00f0a\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Fr\u00e1 upphafi var \u00fea\u00f0 m\u00e9r lj\u00f3st a\u00f0 s\u00fa tegund af samleik sem \u00e9g leita\u00f0i a\u00f0 var \u00f3skyld ofurn\u00e1kv\u00e6mri forskrift \u00fdmissa s\u00ed\u00f0m\u00f3dern\u00edskra verka \u2013 verka \u00fear sem erindi flytjandans er a\u00f0 miklu leyti framselt til h\u00f6fundarins \u2013 en h\u00fan v\u00e6ri jafn \u00f3skyld t\u00f3nlist af frj\u00e1lslegasta taginu \u2013 \u00fear sem erindi h\u00f6fundar er a\u00f0 miklu leyti framselt til flytjenda \u2013 hva\u00f0 \u00fe\u00e1 hinum \u00fdmsu formum af spuna ofan \u00e1 gefinn grunn.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Til a\u00f0 greina sig fr\u00e1 \u00feessu og tala eigin m\u00e1li virtist m\u00e9r a\u00f0 t\u00f3nlistin \u00feyrfti a\u00f0 byggja \u00e1 grunni t\u00f3na sem ekki minntu \u00e1 \u00feekkta t\u00f3nh\u00e6tti. H\u00fan m\u00e6tti gjarnan vera mj\u00f6g einf\u00f6ld en \u00feyrfti \u00fe\u00f3 a\u00f0 teikna upp hlj\u00f3\u00f0mynd handan jafnstillingar, e\u00f0a \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta \u00f3r\u00e6\u00f0a \u00fatg\u00e1fu af jafnstilltu t\u00f3nefni (til d\u00e6mis \u00feannig a\u00f0 ekki s\u00e9u allir t\u00f3nar me\u00f0 n\u00e1kv\u00e6ma t\u00ed\u00f0ni). \u00cd samtali vi\u00f0 \u00fadleikara \u00ed Marrakech \u00fearna um \u00e1ri\u00f0 f\u00e9kk \u00e9g grun minn sta\u00f0festan a\u00f0 t\u00f3nstilling og gj\u00f6r\u00f0 flytjandans v\u00e6ru tengd nokku\u00f0 sterkum b\u00f6ndum. Tiltekin stef geta haft s\u00e9rstaka stillingu, ekki s\u00f6mu sm\u00e1t\u00f3nbil leikin \u00e1 lei\u00f0 upp og ni\u00f0ur \u00ed t\u00f3nsvi\u00f0inu o.s.frv. Vi\u00f0 \u00feekkjum l\u00edka s\u00f6ngst\u00edl v\u00ed\u00f0a um l\u00f6nd \u00fear sem sm\u00e1t\u00f3nbil eru ekki skref \u00ed t\u00f3nstiga heldur eins konar leikr\u00e6n vi\u00f0b\u00f3t.<a href=\"#_ftn6\" name=\"_ftnref6\">[6]<\/a><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">R\u00e9tt eins og t\u00f3nstilling verkanna hl\u00fd\u00f0ir ekki vi\u00f0tekinni vestr\u00e6nni grind fannst m\u00e9r mikilv\u00e6gt a\u00f0 hrynurinn brytist a\u00f0 sama skapi \u00fat \u00far fyrirsj\u00e1anlegu taktslagi. \u00c9g nota v\u00ed\u00f0a deildarhryn (\u00f3reglulegan rytma e\u00f0a svokalla\u00f0ar \u00f3lur) ofan \u00e1 breytilegan grunn \u00fear sem \u00fea\u00f0 gerir hrynslagi\u00f0 h\u00e6filega lifandi. A\u00f0 auki ber v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e9g kalla \u00ed tilraunaskyni fleyg<em>hryn<\/em>, en \u00fea\u00f0 er st\u00fdf\u00f0ur deildarhrynur, til d\u00e6mis \u00feannig a\u00f0 leiki\u00f0 er \u00e1 hra\u00f0a fimm\u00f3lu en s\u00ed\u00f0an byrja\u00f0 \u00e1 \u00f6\u00f0ru slagi \u00ed \u00f3l\u00edkri ni\u00f0urdeilingu eftir a\u00f0eins \u00ferj\u00e1r n\u00f3tur fimm\u00f3lunnar. H\u00e6gt er a\u00f0 ra\u00f0a \u00feannig saman \u00f3l\u00edkum st\u00fdf\u00f0um \u00f3lum og sn\u00ed\u00f0a nokku\u00f0 sveiflukenndan en n\u00e1kv\u00e6man hryn (<em>sj\u00e1 mynd 1<\/em>).<a href=\"#_ftn7\" name=\"_ftnref7\">[7]<\/a><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone wp-image-35766\" src=\"https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd1_atli-scaled.png\" alt=\"\" width=\"496\" height=\"103\" srcset=\"https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd1_atli-scaled.png 2048w, https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd1_atli-1800x374.png 1800w, https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd1_atli-800x166.png 800w\" sizes=\"auto, (max-width: 496px) 100vw, 496px\" \/><br \/>\n<strong>Mynd 1<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hvorki t\u00f3num n\u00e9 hryn sem \u00feannig er hnika\u00f0 til er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a s\u00e9rlega fl\u00f3knir. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti er reynt a\u00f0 sn\u00ed\u00f0a \u00far \u00feeim endurtekin mynstur sem ver\u00f0a flytjendum t\u00f6m eftir d\u00e1litla \u00e6fingu. \u00c1st\u00e6\u00f0a \u00feeirrar sm\u00e1v\u00e6gilegu bj\u00f6gunar sem h\u00e9r er l\u00fdst er annars vegar, sem fyrr segir, a\u00f0 greina t\u00f3nlistina fr\u00e1 \u00feekktum fyrirmyndum \u2013 einfaldleikanum h\u00e6ttir til a\u00f0 leita \u00ed fyrirsj\u00e1anlegt far og \u00fea\u00f0 \u00feurfti a\u00f0 for\u00f0ast \u2013 en hins vegar \u00fej\u00f3nar bj\u00f6gunin mj\u00f6g mikilv\u00e6gum leikr\u00e6num tilgangi: Flytjendurnir \u00ed <em>tadaris<\/em> h\u00f3pnum ver\u00f0a a\u00f0 hafa h\u00e6filega \u00f3fyrirsj\u00e1anlegt efni a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 <em>saman<\/em>. Hvorki sm\u00e1t\u00f3nbil n\u00e9 kleyfhryn er h\u00e6gt a\u00f0 flytja \u00ed h\u00f3p nema h\u00f3purinn hlusti sig vel saman, s\u00e9 samstilltur og \u00f6ruggur. \u00dea\u00f0 er nefnilega einkenni <em>tadaris<\/em> h\u00f3psins, a\u00f0 hann b\u00fai yfir s\u00e9rlega miklu sj\u00e1lfstrausti einmitt af \u00fev\u00ed hann hefur n\u00e1\u00f0 samstilltum t\u00f6kum \u00e1 d\u00e1l\u00edti\u00f0 sn\u00fanu efni.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Ekki er \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 fara \u00fat \u00ed n\u00e1kv\u00e6mari l\u00fdsingar \u00e1 t\u00f3nefninu, en h\u00e9r eru birt d\u00e1l\u00edtil s\u00fdnishorn af n\u00f3tum fyrsta verksins sem sett var saman eftir \u00feessari a\u00f0fer\u00f0.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><strong><em><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-full wp-image-35767\" src=\"https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd2_glosur16-24-35-scaled.png\" alt=\"\" width=\"2048\" height=\"949\" srcset=\"https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd2_glosur16-24-35-scaled.png 2048w, https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd2_glosur16-24-35-1800x834.png 1800w, https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd2_glosur16-24-35-800x371.png 800w\" sizes=\"auto, (max-width: 2048px) 100vw, 2048px\" \/><br \/>\n<\/em>Mynd 2<\/strong><\/p>\n<p><strong><em><br \/>\n<\/em>Gl\u00f3sur Khallams: Hvernig sm\u00ed\u00f0in fer fram<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Til \u00feess a\u00f0 greina \u00feessa a\u00f0fer\u00f0 r\u00e6kilega fr\u00e1 vanalegu verklagi m\u00ednu \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 ekki skyldi semja verki\u00f0 \u00ed heilu lagi fr\u00e1 upphafi til enda. \u00c9g var l\u00edklega undir \u00e1hrifum rafr\u00e6nnar danst\u00f3nlistar \u00feegar \u00e9g \u00e1kva\u00f0 \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 byrja \u00e1 eins konar grunni \u2013 <em>tadaris<\/em> hlutverkinu \u2013 og lj\u00faka vi\u00f0 a\u00f0 gefa honum sannf\u00e6randi mynd allt til enda \u00e1\u00f0ur en hugsa\u00f0 v\u00e6ri um hin hlutverkin. \u00deetta tengist \u00fev\u00ed sem \u00e1\u00f0ur er sagt um \u00fea\u00f0 \u00f3tv\u00edr\u00e6\u00f0a og \u00f6rugga yfirbrag\u00f0 sem \u00feetta hlutverk \u00feafna\u00f0ist. \u00dea\u00f0 var eitt af einkennum a\u00f0fer\u00f0arinnar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Fyrir um \u00e1ratug hef\u00f0i m\u00e9r fundist \u00feessi breyting \u00e1 r\u00f6\u00f0 verk\u00fe\u00e1ttanna alger f\u00e1sinna. H\u00fan sl\u00e6r \u00far h\u00f6ndum m\u00e9r fj\u00f6lda g\u00f3\u00f0ra a\u00f0fer\u00f0a en \u00feess \u00ed sta\u00f0 st\u00f3\u00f0 \u00e9g \u00e1 \u00f3vissusv\u00e6\u00f0i. \u00dea\u00f0 var hins vegar einstaklega endurn\u00e6randi. \u00dea\u00f0 liggur vi\u00f0 a\u00f0 \u00feessi hressandi umskipti s\u00e9u m\u00e9r n\u00e6gileg r\u00e9ttl\u00e6ting \u00e1 \u00f6llu ferlinu. \u201eHva\u00f0 ef \u00feetta misheppnast?\u201c m\u00e1tti spyrja, en svari\u00f0 vi\u00f0 \u00fev\u00ed var einfalt: \u201eHva\u00f0 me\u00f0 \u00fea\u00f0?\u201c<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Eitt af \u00fev\u00ed sem \u00e9g uppg\u00f6tva\u00f0i og leiddi af \u00feessu verklagi var a\u00f0 t\u00f3nverki\u00f0 fer a\u00f0 skiptast \u00ed marga kafla sem eru \u00e1 bilinu \u00ferj\u00e1r til fimm m\u00edn\u00fatur a\u00f0 lengd. \u00dea\u00f0 virtist nefnilega \u00f3r\u00e1\u00f0legt a\u00f0 teygja grunninn um of. Hann l\u00fdkur erindi s\u00ednu \u00feegar svipm\u00f3ti\u00f0 er a\u00f0 mestu komi\u00f0 \u00ed lj\u00f3s, sem tekur um \u00fea\u00f0 bil \u00feennan t\u00edma. Fyrir \u00feessu eru tilteknar \u00e1st\u00e6\u00f0ur sem m\u00e6tti \u00fatsk\u00fdra a\u00f0 nokkru en \u00fea\u00f0 yr\u00f0i langdregi\u00f0 og \u00f3\u00fearft a\u00f0 sinni.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deessir stuttu hlutar verksins samsvara ekki beinl\u00ednis venjulegum k\u00f6flum: Kafli t\u00f3nverks hefur jafnan tiltekinn byggingarfr\u00e6\u00f0ilegan tilgang og formeinkenni. \u00dea\u00f0 er ekki raunin h\u00e9r. \u00dea\u00f0 eina sem afmarkar kaflann er hlutverkaskiptingin, \u00fe\u00f3tt henni fylgi au\u00f0vita\u00f0 tilteki\u00f0 svipm\u00f3t og rytm\u00edsk og hlj\u00f3mr\u00e6n meginhugmynd. Og kaflanum l\u00fdkur ekki \u00feegar tilteki\u00f0 form er fullkomna\u00f0 heldur einfaldlega \u00feegar flytjendur telja sig vera b\u00fana a\u00f0 birta leikr\u00e6nt inntak hans n\u00e6gilega sk\u00fdrt svo skipta megi yfir \u00ed n\u00e6sta mynstur. \u00c9g nefni \u00feessa hluta t\u00f3nverksins <em>slagi. <\/em><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">En \u00feetta er \u00f3vissusv\u00e6\u00f0i, h\u00e9r \u00feurfti gj\u00f6ri\u00f0 svo vel a\u00f0 l\u00e6ra upp \u00e1 n\u00fdtt a\u00f0 semja t\u00f3nlist. H\u00e9r voru \u00fea\u00f0 a\u00f0st\u00e6\u00f0urnar sem m\u00f3tu\u00f0u vinnuna, settu skilyr\u00f0i, reglur og tilgang. \u00c9g st\u00f3\u00f0 mig \u00edtreka\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skipuleggja efni\u00f0 eftir einhverjum r\u00f6kr\u00e6num lei\u00f0um sem ekki virtu a\u00f0st\u00e6\u00f0urnar. \u00de\u00e1 \u00feurfti a\u00f0 taka skref aftur \u00e1 bak, semja minna og skapa meira, ef svo m\u00e1 a\u00f0 or\u00f0i komast.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">N\u00e1kv\u00e6mlega a\u00f0 hversu miklu leyti verki\u00f0 \u00feyrfti a\u00f0 vera samr\u00e6md bygging var st\u00f6\u00f0ugt umhugsunarefni. \u00de\u00f3tt \u00e9g hafi mj\u00f6g dregi\u00f0 \u00far hef\u00f0bundnum kr\u00f6fum til \u00feess \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 ein hlj\u00f3mr\u00e6n grind m\u00e6tti vera eins konar hryggjarstykki \u00ed gegn um verki\u00f0. H\u00fan byggir \u00e1 tilteknu hlj\u00f3\u00f0r\u00f3fi sem er mismiki\u00f0 t\u00ed\u00f0nibjaga\u00f0 og stokka\u00f0 eftir sl\u00f6gum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00dea\u00f0 var m\u00e9r mikilv\u00e6gt a\u00f0 allir flytjendur reyndu sig vi\u00f0 \u00f6ll hlutverk \u00feannig a\u00f0 til d\u00e6mis bassahlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri f\u00e6ri ekki sj\u00e1lfkrafa \u00ed <em>tadaris<\/em> hlutverki\u00f0. \u00c9g f\u00f3r a\u00f0 sko\u00f0a hversu margir m\u00f6guleikar eru \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 skipta h\u00f3p \u00ed \u00ferj\u00e1 hluta. \u00deetta vandam\u00e1l reyndist leysanlegt me\u00f0 svokalla\u00f0ri annarar ger\u00f0ar <em>Stirling<\/em> form\u00falu og ni\u00f0ursta\u00f0an s\u00fa a\u00f0 mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 sj\u00f6 manna h\u00f3p, eins og \u00feann sem \u00e9g hugsa\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a til leiks, voru 301 m\u00f6guleiki \u00e1 \u00fer\u00edskiptingu<a href=\"#_ftn8\" name=\"_ftnref8\">[8]<\/a>. \u00deetta var talsvert meira en \u00e9g haf\u00f0i \u00edmynda\u00f0 m\u00e9r og setti mig \u00ed vanda vi\u00f0 a\u00f0 \u00e1kvar\u00f0a hva\u00f0a skiptingar yr\u00f0u fyrir valinu. Fyrsta svari\u00f0 vi\u00f0 \u00fev\u00ed var a\u00f0 l\u00e1ta hags\u00fdni r\u00e1\u00f0a.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Gl\u00f3sur Khallams: \u00c6fingaferli<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00dea\u00f0 var einhvers konar hugs\u00fdn \u00ed upphafi \u00feessarar ranns\u00f3knar a\u00f0 fyrsta tilraun me\u00f0 efni\u00f0 yr\u00f0i fyrir h\u00f3p sj\u00f6 flytjenda og yr\u00f0i \u00ed sj\u00f6 \u00fe\u00e1ttum. Fyrir millig\u00f6ngu Gu\u00f0na Franzsonar og Caput h\u00f3psins r\u00e9\u00f0ust \u00feessir til verksins: Hilmar Jensson, g\u00edtar, Brynd\u00eds Halla Gylfad\u00f3ttir, sell\u00f3, Gu\u00f0bjartur H\u00e1konarson, v\u00ed\u00f3la, Matth\u00edas Hemstock, slagverk, Magn\u00fas J\u00f3hann Ragnarsson, Ondes Martenot, J\u00f3n Arnar J\u00f3nsson, b\u00e1s\u00fana, auk Gu\u00f0na sem l\u00e9k \u00e1 klarinett. \u00c1 h\u00f3pnum s\u00e9st s\u00e1 \u00e1setningur a\u00f0 ekki s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 skipa \u00feessu mengi flytjenda \u00ed einhvern s\u00e9rstakan flokk eftir aldri, hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri e\u00f0a tegund t\u00f3nlistar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">N\u00fa \u00feurfti a\u00f0 skipuleggja \u00e6fingar \u00fear sem v\u00e6ri l\u00e1ti\u00f0 reyna \u00e1 a\u00f0fer\u00f0ina. Skilyr\u00f0i\u00f0 a\u00f0 <em>tadaris <\/em>skyldi \u00e1vallt \u00feaul\u00e6ft \u00e1\u00f0ur en hin hlutverkin k\u00e6mu til leiks leiddi af s\u00e9r verkfr\u00e6\u00f0ilegt vi\u00f0fangsefni. \u00c6fingar \u00feurfti a\u00f0 skipuleggja \u00feannig a\u00f0 allir flytjendur hef\u00f0u eitthva\u00f0 a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 og enginn v\u00e6ri i\u00f0julaus, jafnvel \u00fe\u00f3tt a\u00f0eins v\u00e6ri veri\u00f0 a\u00f0 \u00e6fa eitt hlutverk fyrst. \u00deetta \u00e1tti \u00e9g vi\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nefna hags\u00fdni h\u00e9r a\u00f0 ofan.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deetta var leyst \u00feannig a\u00f0 h\u00f3purinn m\u00e6lti s\u00e9r m\u00f3t \u00e1 sta\u00f0 \u00fear sem voru \u00fer\u00edr salir.<a href=\"#_ftn9\" name=\"_ftnref9\">[9]<\/a> B\u00fai\u00f0 var til n\u00e1kv\u00e6mt \u00e6fingaskipulag \u00fear sem hver flytjandi f\u00e9kk t\u00f6flu yfir \u00ed hva\u00f0a sal hann \u00e6tti a\u00f0 vera hverju sinni og hversu lengi. \u00c1\u00f0ur var \u00e9g au\u00f0vita\u00f0 b\u00fainn a\u00f0 liggja yfir \u00feessu, b\u00faa til sj\u00f6 \u00f3l\u00edka <em>tadaris <\/em>h\u00f3pa sem \u00fe\u00f3 m\u00e1tti p\u00fasla saman \u00ed svona \u00e6fingaskipulag me\u00f0 \u00fev\u00ed sem n\u00e6st fullri n\u00fdtingu h\u00f3psins (sj\u00e1 mynd 3).<\/p>\n<p><strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-full wp-image-35768\" src=\"https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd3_ny.png\" alt=\"\" width=\"858\" height=\"1267\" srcset=\"https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd3_ny.png 858w, https:\/\/www.lhi.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/mynd3_ny-542x800.png 542w\" sizes=\"auto, (max-width: 858px) 100vw, 858px\" \/><br \/>\nMynd 3<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Fyrir utan r\u00fdmisp\u00fasli\u00f0 voru nokkur \u00f6nnur skilyr\u00f0i sem h\u00f6f\u00f0u \u00e1hrif \u00e1 h\u00f3paskiptinguna. Tadarish\u00f3par \u00e1ttu a\u00f0 vera fj\u00f6lbreyttir a\u00f0 st\u00e6r\u00f0, ekki m\u00e1ttu s\u00f6mu flytjendur vera oft saman \u00ed \u00feessum h\u00f3p, enginn flytjandi m\u00e1tti vera oftar en \u00ferisvar \u00ed h\u00f3pnum og allir flytjendur ur\u00f0u a\u00f0 vera \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta einu sinni \u00ed honum. \u00dea\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 m\u00e9r hafi \u00fe\u00f3tt \u00feessi skilyr\u00f0i sem stu\u00f0la a\u00f0 fj\u00f6lbreytni h\u00f3panna \u00e1kj\u00f3sanleg fyrir ranns\u00f3knargildi verkefnisins. Einhver fegur\u00f0 virtist einnig f\u00f3lgin \u00ed \u00f3fyrirsj\u00e1anleikanum, en hver veit svosem nema h\u00e9r hafi vakna\u00f0 \u00ed m\u00e9r gamall m\u00f3dern\u00edskur draugur. Hugmyndin um fj\u00f6lbreytni er reyndar mun eldri en m\u00f3dernisminn og hefur \u00e1hrif \u00e1 t\u00f3nlist langt aftur \u00ed \u00f6ldum.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Vinnustofa me\u00f0 Caput<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00d3h\u00e6tt er a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 val \u00fe\u00e1tttakenda r\u00e9\u00f0ist ekki einungis af \u00feessari kynlegu hlj\u00f3\u00f0f\u00e6rabl\u00f6ndu. H\u00e9r \u00feurfti a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u a\u00f0 kalla til forviti\u00f0, j\u00e1kv\u00e6tt og fj\u00f6lh\u00e6ft t\u00f3nlistarf\u00f3lk og reyna fr\u00e1 upphafi a\u00f0 opna \u00fev\u00ed hugarheim \u00feessa verkefnis.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Vinnan h\u00f3fst \u00ed raun me\u00f0 matarbo\u00f0i flj\u00f3tlega eftir skipun h\u00f3psins. \u00dear reyndi \u00e9g a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra sem best hva\u00f0 st\u00e6\u00f0i fyrir dyrum og f\u00e1 flytjendum eitt og anna\u00f0 a\u00f0 \u00edhuga fram a\u00f0 vinnustofunni. \u00dearna var \u00e9g ekki tilb\u00fainn me\u00f0 n\u00f3tur og rita\u00f0ar lei\u00f0beiningar. \u00de\u00f3tt svo hef\u00f0i veri\u00f0 hef\u00f0i \u00e9g l\u00edklega ekki afhent \u00fe\u00e6r strax; \u00fea\u00f0 hef\u00f0i gefi\u00f0 til kynna a\u00f0 \u00e1 endanum v\u00e6ri vi\u00f0fangsefni\u00f0 nokku\u00f0 hef\u00f0bundi\u00f0 og snerist um a\u00f0 lesa \u00far n\u00f3tum. \u00deess \u00ed sta\u00f0 kaus \u00e9g a\u00f0 reyna a\u00f0 s\u00e1 nokkrum fr\u00e6jum, skapa eftirv\u00e6ntingu e\u00f0a forvitni. \u00c9g ba\u00f0 svo h\u00f3pinn a\u00f0 geyma allar l\u00fdsingar m\u00ednar innra me\u00f0 s\u00e9r og tj\u00e1 sig ekki um \u00fe\u00e6r vi\u00f0 a\u00f0ra. H\u00e9r var reyndar ekkert herna\u00f0arleyndarm\u00e1l \u00e1 fer\u00f0inni en \u00feetta var vinnua\u00f0fer\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">S\u00ed\u00f0degis 19. jan\u00faar 2025 hittist h\u00f3purinn og fyrsta \u00fatg\u00e1fa af Gl\u00f3sum Khallams var prufukeyr\u00f0: Ni\u00f0urdeiling t\u00edma- og r\u00fdmis, h\u00f3paskipting, slagirnir sj\u00f6, rith\u00e1ttur t\u00f3nefnis og almenn samskipti. \u00dea\u00f0 var m\u00e9r mikilv\u00e6gt a\u00f0 komast \u00ed gegn um allt efni\u00f0 og \u00e1 r\u00e9tt um fj\u00f3rum t\u00edmum settum vi\u00f0 saman sj\u00f6 slagi, nokku\u00f0 sem g\u00e6ti or\u00f0i\u00f0 um h\u00e1lft\u00edma langt verk.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c9g hugsa\u00f0i \u00feetta a\u00f0 m\u00f6rgu leyti sem fyrstu gagna\u00f6flun verkefnisins og lag\u00f0i meiri \u00e1herslu \u00e1 magn en g\u00e6\u00f0i \u00fatkomunnar. Vi\u00f0 g\u00e1fum okkur \u00fev\u00ed yfirleitt ekki t\u00edma til \u00feess a\u00f0 f\u00ednp\u00fassa e\u00f0a endursko\u00f0a \u00fatkomuna. \u00c9g l\u00e6t h\u00e9r fylgja nokkrar glefsur \u00far v\u00edde\u00f3skr\u00e1setningu sem Adam Buffington s\u00e1 um. \u00dear gefur a\u00f0 heyra verk \u00ed f\u00e6\u00f0ingu en ekkert sem l\u00edkist fullger\u00f0ri mynd \u00fev\u00ed h\u00fan mun \u00fearfnast lengri samveru og betri leikstj\u00f3rnarvinnu af minni h\u00e1lfu.<\/p>\n<div style=\"width: 640px;\" class=\"wp-video\"><video class=\"wp-video-shortcode\" id=\"video-35646-1\" width=\"640\" height=\"360\" preload=\"metadata\" controls=\"controls\"><source type=\"video\/mp4\" src=\"https:\/\/lhi.canto.global\/direct\/video\/obn6ohgj313kn8polgas43hc2v\/miAkOZ6hEl0nz6DzLV9kk8beV1Y\/original?content-type=video%2Fmp4&#038;_=1#038;name=The+Khashif+Papers+Session.mp4\" \/><a href=\"https:\/\/lhi.canto.global\/direct\/video\/obn6ohgj313kn8polgas43hc2v\/miAkOZ6hEl0nz6DzLV9kk8beV1Y\/original?content-type=video%2Fmp4&#038;name=The+Khashif+Papers+Session.mp4\">https:\/\/lhi.canto.global\/direct\/video\/obn6ohgj313kn8polgas43hc2v\/miAkOZ6hEl0nz6DzLV9kk8beV1Y\/original?content-type=video%2Fmp4&#038;name=The+Khashif+Papers+Session.mp4<\/a><\/video><\/div>\n<p><strong>Mynd 4:<\/strong> <em>Glefsur fr\u00e1 vinnustofu 19. jan\u00faar 2025. \u00cd lokin m\u00e1 heyra hvernig hayat getur hleypt fullkomlega framandi en \u00feekktu efni inn \u00ed verki\u00f0.<\/em><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Eftir vinnustofuna gl\u00f3sa\u00f0i \u00e9g hj\u00e1 m\u00e9r fj\u00f6lmargt um frekari \u00fer\u00f3un verksins. \u00c9g var s\u00e9rlega \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 \u00fea\u00f0 <em>\u00e1stand<\/em> sem \u00e9g fann fyrir vi\u00f0 sj\u00f3ndeildarhringinn en v\u00ed\u00f0a \u00feurfti \u00e9g auglj\u00f3slega a\u00f0 einfalda, sk\u00fdra og endursko\u00f0a, og l\u00edklega munu einhverjir slagir detta \u00fat og a\u00f0rir koma \u00ed \u00feeirra sta\u00f0. \u00dea\u00f0 r\u00fdrir ekkert gildi heildarinnar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur var meginni\u00f0ursta\u00f0a m\u00edn s\u00fa a\u00f0 tilraunin hef\u00f0i heppnast: \u00dea\u00f0 vakna\u00f0i l\u00f6ngun til a\u00f0 halda \u00e1fram og taka n\u00e6stu skref sem mundu lei\u00f0a af s\u00e9r opinbera birtingu verksins. \u00dea\u00f0 skref er n\u00fa \u00ed undirb\u00faningi og stefnt a\u00f0 samveru t\u00f3nlistarmannanna \u00ed opinberu r\u00fdmi \u00fear sem \u00e1heyrendur geta fylgst me\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera bundnir yfir verkinu. \u00dear m\u00e6tti jafnvel flytja heildarformi\u00f0 oftar, endurtaka st\u00f6ku slagi, tala saman og breyta e\u00f0a alt\u00e9nt ekki l\u00edta \u00e1 flutninginn sem venjulega t\u00f3nleika.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Eftir \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 a\u00f0fer\u00f0in s\u00e9 reynd me\u00f0 fleiri t\u00f3nlistarm\u00f6nnum, til d\u00e6mis \u00feannig a\u00f0 sama efni s\u00e9 yfirf\u00e6rt \u00e1 \u00f6nnur hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri, en jafnframt tilraunir ger\u00f0ar me\u00f0 sm\u00e6rri e\u00f0a st\u00e6rri h\u00f3pum. S\u00ed\u00f0an m\u00e1 segja a\u00f0 a\u00f0fer\u00f0in s\u00e9 ekki fullreynd fyrr en \u00f6nnur t\u00f3nsk\u00e1ld reyna sig vi\u00f0 hana og sm\u00e1m saman safnast upp meiri reynsla, or\u00f0afor\u00f0i og t\u00e6kni henni vi\u00f0v\u00edkjandi. Jafnframt v\u00e6ri \u00e1hugavert \u00ed framt\u00ed\u00f0inni a\u00f0 gera tilraunir me\u00f0 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00e1hugamanna \u00ed samstarfi vi\u00f0 reynda t\u00f3nlistarmenn. Til d\u00e6mis v\u00e6ri au\u00f0velt a\u00f0 finna \u00feeim sta\u00f0 \u00ed <em>hayat<\/em> hlutverkinu.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Allt \u00e6tti \u00fea\u00f0 a\u00f0 draga \u00far vi\u00f0teknum v\u00e6ntingum okkar um \u00fea\u00f0 hva\u00f0 t\u00f3nverk er, hva\u00f0 flytjandi, hva\u00f0 h\u00f6fundur, hva\u00f0 t\u00f3nleikar og helst einnig hva\u00f0 t\u00f3nleikasta\u00f0ur. Og eftir s\u00e6ti a\u00f0eins einhver tilfinning fyrir <em>\u00e1standi<\/em>, eins og vi\u00f0 v\u00e6rum st\u00f6dd inni \u00ed frumu og g\u00e6tum ekki anna\u00f0 en teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed l\u00edfefnaferlum hennar, s\u00edbreytilegum en \u00fe\u00f3 nau\u00f0synlegum.<\/p>\n<p><strong><em>\u00a0<\/em><\/strong><\/p>\n<p><strong><em>Vi\u00f0auki: k\u00f6nnun me\u00f0al \u00fe\u00e1tttakenda<\/em><\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Sem fyrr segir skiptu samskipti vi\u00f0 flytjendur miklu m\u00e1li fyrir verkefni\u00f0. Eftir vinnustofuna deildi \u00e9g me\u00f0 \u00feeim nokkrum \u00e1lyktunum m\u00ednum svo h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fe\u00e6r \u00ed h\u00f3p. Jafnframt ger\u00f0i \u00e9g d\u00e1litla k\u00f6nnun \u00e1 vi\u00f0horfi \u00feeirra til nokkurra atri\u00f0a. H\u00fan var nafnlaus, send \u00fat \u00ed gegn um <em>Forms<\/em> forriti\u00f0 og allir sj\u00f6 sv\u00f6ru\u00f0u. Svarm\u00f6guleikar voru fj\u00f3rir vi\u00f0 hverja spurningu, allt fr\u00e1 afgerandi neikv\u00e6\u00f0ra til mj\u00f6g j\u00e1kv\u00e6\u00f0ra svara. H\u00e9r \u00e1 eftir fara ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur \u00feessarar k\u00f6nnunar. Til a\u00f0 spara pl\u00e1ss tilgreini \u00e9g ekki sv\u00f6r sem enginn haka\u00f0i vi\u00f0.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol>\n<li><strong> Almenn kynning a\u00f0fer\u00f0arinnar hef\u00f0i m\u00e1tt vera betri.<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>&#8211; J\u00e1, h\u00fan var of \u00f3lj\u00f3s: 14%<\/p>\n<p>&#8211; Nei, h\u00fan var nokku\u00f0 lj\u00f3s: 43%<\/p>\n<p>&#8211; Nei, h\u00fan var algerlega sk\u00fdr: 43%<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol start=\"2\">\n<li><strong> Ritu\u00f0 fyrirm\u00e6li hvers hluta hef\u00f0u m\u00e1tt vera sk\u00fdrari.<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>&#8211; J\u00e1, \u00ed sumum hlutum hef\u00f0u fyrirm\u00e6li m\u00e1tt vera sk\u00fdrari: 14%<\/p>\n<p>&#8211; Nei, \u00feau voru oftast nokku\u00f0 lj\u00f3s: 86%<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol start=\"3\">\n<li><strong> Slagirnir voru h\u00e6filega langir.<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>&#8211; J\u00e1, \u00feeir voru flestir af h\u00e6filegri lengd: 100%<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol start=\"4\">\n<li><strong> \u00dea\u00f0 var erfitt a\u00f0 skipta st\u00f6\u00f0ugt um hlutverk \u00ed verkinu.<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>&#8211; Nei, \u00fea\u00f0 var yfirleitt e\u00f0lilegt: 29%<\/p>\n<p>&#8211; Nei, alls ekki, og var bara \u00e1n\u00e6gjulegt: 71%<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol start=\"5\">\n<li><strong> \u00dea\u00f0 var \u00f3\u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 f\u00e1 s\u00edfellt n\u00fdja me\u00f0leikara \u00ed hlutverkunum.<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>&#8211; Nei, \u00fea\u00f0 var alltaf skemmtilegt: 100%<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol start=\"6\">\n<li><strong> \u00dea\u00f0 hef\u00f0i \u00feurft stj\u00f3rnanda til a\u00f0 n\u00e1 betri \u00e1rangri.<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>&#8211; J\u00e1, allt verki\u00f0 hef\u00f0i gengi\u00f0 betur me\u00f0 stj\u00f3rnanda: 14%<\/p>\n<p>&#8211; J\u00e1, stundum hef\u00f0i verki\u00f0 or\u00f0i\u00f0 betra me\u00f0 stj\u00f3rnanda: 29%<\/p>\n<p>&#8211; Nei, yfirleitt var betra a\u00f0 vinna \u00e1n stj\u00f3rnanda: 29%<\/p>\n<p>&#8211; Nei, \u00fea\u00f0 hef\u00f0i alls ekki m\u00e1tt hafa stj\u00f3rnanda: 29%<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol start=\"7\">\n<li><strong> \u00c9g haf\u00f0i n\u00e6gilegt skapandi svigr\u00fam \u00ed verkinu.<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>&#8211; J\u00e1, \u00e9g haf\u00f0i oftast h\u00e6filegt svigr\u00fam: 86%<\/p>\n<p>&#8211; J\u00e1, svigr\u00fam hef\u00f0i ekki geta\u00f0 veri\u00f0 meira: 14%<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol start=\"8\">\n<li><strong> T\u00f3nlistin var h\u00e6filega einf\u00f6ld til a\u00f0 allir n\u00e6\u00f0u a\u00f0 tengjast.<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>&#8211; J\u00e1, h\u00fan var oftast m\u00e1tulega einf\u00f6ld: 100%<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol start=\"9\">\n<li><strong> Hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri mitt naut s\u00edn m\u00e1tulega \u00ed \u00feessu samhengi.<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>&#8211; J\u00e1, \u00fea\u00f0 naut s\u00edn oftast h\u00e6filega: 100%<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<ol start=\"10\">\n<li><strong> Er eitthva\u00f0 sem \u00fe\u00fa vilt b\u00e6ta vi\u00f0 fr\u00e1 eigin brj\u00f3sti um \u00feetta verkefni?<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>&#8211; \u201eV\u00e6ri gaman a\u00f0 hittast aftur og kafa d\u00fdpra.\u201c<\/p>\n<p>&#8211; \u201e Svarm\u00f6guleikar \u00ed nr.8 n\u00e1 ekki utan um st\u00f6\u00f0una a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 fjalla um \u00f3\u00fearflega\/m\u00e1tulega einfalt\/fl\u00f3ki\u00f0. \u00c9g tel \u00feessa kvar\u00f0a ekki eiga vi\u00f0 heldur frekar hvort efni\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00e1hugavert, sem \u00fea\u00f0 var svo sannarlega.<\/p>\n<p>&#8211; \u201eSkemmtilegt verkefni og fr\u00e1b\u00e6r forvinna.\u201c<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&#8212;<\/p>\n<p><a href=\"#_ftnref1\" name=\"_ftn1\">[1]<\/a> \u00c9g hef \u00e1\u00f0ur reynt a\u00f0 setja sk\u00f6punarstarf mitt \u00ed s\u00f6gulegt samhengi. \u00de\u00e1 sko\u00f0a\u00f0i \u00e9g verk m\u00edn fr\u00e1 upphafi t\u00f3nsm\u00ed\u00f0aferilsins og r\u00e6ddi afst\u00f6\u00f0u \u00feeirra til m\u00f3dernismans. Sj\u00e1 AT\u00d3NAL 3.1 \u00ed <em>\u00der\u00e1\u00f0um<\/em>, 1. tbl., 2016.<\/p>\n<p><a href=\"#_ftnref2\" name=\"_ftn2\">[2]<\/a> H\u00e9r er v\u00edsa\u00f0 \u00ed t\u00f3nleikh\u00fasverkin <em>Suzannah, Play Alter Native, Nj\u00e1ls saga &#8211; brunnin \u00f3pera <\/em>og <em>\u00cdsl#nsk \u00dej\u00f3\u00f0l\u00f6 g, <\/em>en l\u00edklega \u00e1 k\u00f3rsm\u00ed\u00f0in <em>Elsku Borga m\u00edn<\/em> einnig heima \u00e1 \u00feessum lista.<\/p>\n<p><a href=\"#_ftnref3\" name=\"_ftn3\">[3]<\/a> H\u00e9r er v\u00edsa\u00f0 \u00ed upphafsmann morm\u00f3natr\u00faarinnar og jarteikn hans.<\/p>\n<p><a href=\"#_ftnref4\" name=\"_ftn4\">[4]<\/a> \u00dea\u00f0 er til marks um a\u00f0 \u00feessi ranns\u00f3kn m\u00edn er langt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera fullunnin a\u00f0 heiti \u00feessa \u00e1g\u00e6ta t\u00f3nlistarfr\u00e6\u00f0ings hefur veri\u00f0 nokku\u00f0 \u00e1 reiki. \u00cd draumi birtist m\u00e9r fyrst nafni\u00f0 Azbet Jervi Khallam. Vi\u00f0 d\u00e1litla yfirbor\u00f0slega k\u00f6nnun \u00e1 \u00fev\u00ed nafni virtist m\u00e9r eitthva\u00f0 vafasamt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 og f\u00f3r um stund a\u00f0 nota <em>Khashif, <\/em>og undir \u00fev\u00ed heiti hef \u00e9g kynnt verkefni\u00f0 vi\u00f0 einhver t\u00e6kif\u00e6ri. N\u00fa s\u00ed\u00f0ast f\u00e9ll \u00e9g fr\u00e1 \u00feessari feimni og sneri aftur til upprunalegs nafns, enda finnst m\u00e9r \u00fea\u00f0 hlj\u00f3ma betur.<\/p>\n<p><a href=\"#_ftnref5\" name=\"_ftn5\">[5]<\/a> H\u00e9r er vitaskuld brug\u00f0ist vi\u00f0 hinu gamalkunna vandam\u00e1li \u00ed heimi rita\u00f0rar t\u00f3nlistar a\u00f0 einhvern t\u00edma vir\u00f0ist hafa dregi\u00f0 \u00far umbo\u00f0i flytjandans til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed sk\u00f6pun verksins. Me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um greindust h\u00f6fundar og t\u00falkendur a\u00f0; h\u00f6fundar ur\u00f0u \u00e6 sjaldnar t\u00falkendur eigin verka og t\u00falkendum var samt\u00edmis \u00fath\u00fdst \u00far st\u00e9tt h\u00f6funda.<\/p>\n<p><a href=\"#_ftnref6\" name=\"_ftn6\">[6]<\/a> \u00dea\u00f0 n\u00e6gir vonandi a\u00f0 v\u00edsa \u00ed <em>meend <\/em>s\u00f6ngt\u00e6knina \u00ed hindustani t\u00f3nlist sem d\u00e6mi.<\/p>\n<p><a href=\"#_ftnref7\" name=\"_ftn7\">[7]<\/a> \u00deetta er \u00fea\u00f0 sem \u00e1 ensku er nefnt<em> incomplete tuplets.<\/em><\/p>\n<p><a href=\"#_ftnref8\" name=\"_ftn8\">[8]<\/a> \u00c9g \u00feakka Matth\u00edasi Korm\u00e1kssyni st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ingi og harm\u00f3nikkuleikara fyrir a\u00f0 leysa \u00feessa \u00feraut fyrir mig. Fyrir \u00e1hugasama \u00fe\u00e1 l\u00edtur form\u00falan svona \u00fat: \u00a0\u00fear sem <em>n<\/em>=7 og <em>k<\/em>=3.<\/p>\n<p><a href=\"#_ftnref9\" name=\"_ftn9\">[9]<\/a> Enn var Gu\u00f0ni Franzson lykilma\u00f0ur \u00ed verkinu og l\u00e9\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0st\u00f6\u00f0u \u00ed h\u00f6fu\u00f0st\u00f6\u00f0vum T\u00f3neyjar \u00ed Skipholti.<\/p>\n\t\t\t\t\t\n\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t<\/div>\n<\/div>\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"","protected":false},"author":35,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"_acf_changed":false,"wds_primary_threads_cat":0,"footnotes":""},"threads_cat":[309],"class_list":["post-35646","threads","type-threads","status-publish","hentry","threads_cat-thraedir-tolublad-11"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.lhi.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/threads\/35646","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.lhi.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/threads"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.lhi.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/threads"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.lhi.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/35"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.lhi.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=35646"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/www.lhi.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/threads\/35646\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":36511,"href":"https:\/\/www.lhi.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/threads\/35646\/revisions\/36511"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.lhi.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=35646"}],"wp:term":[{"taxonomy":"threads_cat","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.lhi.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/threads_cat?post=35646"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}