Fornafn: 
Erlendur
Eftirnafn: 
Sveinsson

Erlendur Sveinsson er leikstjóri og framleiðandi með masterspróf í leikstjórn frá Columbia University. Hann hlaut Fulbright styrk til námsins og útskrifaðist sumarið 2018. Stuttmyndir hans úr náminu, Kanarí og Thick Skin hafa verið sýndar á yfir 100 kvikmyndahátíðum og voru báðar tilnefndar sem drama of the year á The vimeo Staff pick awards 

Erlendur hóf kvikmyndaferil sinn eftir hann útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Ísland  með stuttmyndina Kæri Kaleb. Hann vann stuttmyndahátíð unga fólksins, Ljósvakaljóð með stuttmyndinni Viltu breyta lífi þínu? og síðar mínótumyndakeppni RIFF fyrir mynd sína Breathe. Erlendur hefur leikstýrt tugum tónlistarmyndbanda fyrir marga af vinsælustu tónlistarmönnum íslands og tónlistarmyndband hans við lag Ásgeirs Trausta var valið á Camera Image hátíðina í Póllandi. Hann hefur verið valinn á Nordic talent Campus, Les Arcs Talent village & Berlinale Talent campus. Í dag rekur Erlendur framleiðslufyrirtækið Sensor og vinnur að sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd. 

Department: 
Deild á starfsmannasíðu: