Fornafn: 
Ása Helga
Eftirnafn: 
Hjörleifsdóttir
Ása Helga Hjörleifsdóttir er handritshöfundur og leikstjóri, fædd árið 1984. Hún lauk BA prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og vann um tíma við bókagagnrýni og útvarpsþáttagerð á Rás 1. Árið 2008 flutti hún til New York til að læra kvikmyndagerð í Columbia háskóla, og lauk þaðan MFA prófi með ágætiseinkunn vorið 2012. Ása hefur skrifað og leikstýrt fjölda stuttmynda, og ber helst að nefna myndirnar Ástarsaga(2012, sem komst m.a. í lokaúrtak fyrir Óskarverðlaunin í flokki útskriftarmynda úr kvikmyndaskólum), og Þú og ég (2015). Fyrsta kvikmynd Ásu í fullri lengd, Svanurinn, sem er hennar aðlögun á samnefndri skáldsögu Guðbergs Bergssonar, var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto 2017, ferðaðist um heiminn og vann til fjölda verðlauna. Í september 2022 var nýjasta kvikmynd Ásu, Svar við bréfi Helgu frumsýnd á Íslandi, og í kjölfarið frumsýnd alþjóðlega á Black Nights hátíðinni í Tallinn í nóvember 2022. Samhliða kvikmyndaverkefnum sínum hefur Ása Helga starfað með myndlistarmanninum Ragnari Kjartanssyni, og leikstýrði nú síðast umfangsmiklu vídeó- og performance verki hans Santa Barbara í Moskvu sem stóð yfir frá 4. desember 2021 til 24. febrúar 2022.  
Department: 
Deild á starfsmannasíðu: