Fornafn: 
Matthildur Anna Gísladóttir

Matthildur Anna Gísladóttir lauk bachelornámi í einleik frá Listaháskóla Íslands árið 2007 undir leiðsögn Peter Máté. Einnig lauk hún mastersnámi í meðleik við Royal Academy of Music í London með Andrew West sem aðalkennara og mastersnámi í óperuþjálfun frá Alexander Gibson Opera School í Royal Conservatoire of Scotland og hlaut þar James H. Geddes Repetiteur verðlaunin. Þar naut hún leiðsagnar Tim Dean og Oliver Rundell. Veturinn 2014- 15 starfaði hún sem óperuþjálfi hjá RCS. Matthildur er virkur flytjandi innlendis sem erlendis. Hún hefur komið fram á fjölda tónleika og komið að óperuuppsetningum m.a. hjá Íslensku óperunni, Óperudögum, British Youth Opera, Clonter Opera, Lyric Opera Studio í Weimar, Scottish Opera og Royal Academy Opera. Matthildur er aðjúnkt í meðleik við tónlistardeild Listaháskóla Íslands auk þess sem hún hefur starfað sem meðleikari við MÍT síðastliðin tvö ár.

Department: 
Deild á starfsmannasíðu: