Rannsóknanefnd starfar í umboði fagráðs, sem felur nefndinni að fjalla um skilgreind mál sem lúta að rannsóknum og nýsköpun. Ályktanir nefndarinnar ber að leggja undir fagráð til samþykktar og/eða frekari úrvinnslu.
Hlutverk:
- að stýra innleiðingu nýs gæðakerfis rannsókna og nýsköpunar á fræðasviði lista
- að styðja við innleiðingu rannsóknastefnu skólans inni í deildum
- að sinna árlegu mati á afrakstri akademískra starfsmanna, skv. gæðaviðmiðum fyrir rannsóknir og nýsköpun á fræðasviði lista
- að meta umsóknir um rannsóknaleyfi út frá gæðaviðmiðum um rannsóknir og nýsköpun á fræðasviði lista (sjá: reglur um rannsóknaleyfi)
- að meta umsóknir í Rannsóknasjóð LHÍ
- að skipa a.m.k einn fulltrúa ráðstefnunefnd Hugarflugs.
Nefndarfulltrúar 2018-2019
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, listkennsludeildar
Lóa Auðunsdóttir, hönnunar- og arkitektúrdeild
Jóhannes Dagsson, myndlistardeild
Alexander Roberts, sviðslistadeild
Þorbjörg Daphne Hall, tónsmíðum
Hulda Stefánsdóttir, verkefnastjóri rannsókna