Zotero er ókeypis heimildaskráningarforrit þróað af Center for History and New Media við George Mason háskólann í Bandaríkjunum.
Zotero er hægt að nota bæði sem íbót í Firefox eða sem sjálfstætt forrit. Forritið getur m.a.:
- skráð efni af netinu í heimildaskrá (smellir bara á einn takka í Firefox),
- bætt í heimildaskrá sjálfkrafa þegar þú setur nýja tilvísun í texta,
- hjálpað þér við að halda PDF skjölum, hlekkjum og öðrum heimildum til haga og
- gert þér kleift að deila heimildum með öðrum.
Farðu á Zotero.org ef þú vilt kynna þér forritið betur eða hlaða því niður.