What do you want to find?
Alfreð Ingvar A. Pétursson
Eukaryota
Hreyft letur verður vinsælla með hverju árinu og möguleikarnir eru óendanlegir. Letrið Eukaryota er hannað með það í huga að hreyfa það. Grunnhugmyndin er sprottin frá kjarna lífsins, fyrirbærinu mítósu (jafnskiptingu), þar sem frumur sveima um og tvöfaldast.
Formin sem myndast við frumuskiptinguna urðu kveikja að hönnuninni. Í verkinu haldast í hendur regla og óregla. Form letursins eru lífræn og ófyrirsjáanleg en jafnframt byggð á punktakerfi (5x5) sem sameinar heildina.
Framsetningin er á stafrænu formi sem gefur mikinn sveigjanleika þegar kemur að hreyfingu letursins, gagnvirkni og notendaupplifun.




