Námið er eins árs (tveggja missera), 60 eininga fræðilegt og hagnýtt framhaldsnám í kennslufræðum sem lýkur með diplóma gráðu.
Námið miðar að því að mennta fólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi. Námið er fjölbreytt og byggir á námskeiðum í kennslu-, uppeldis- og sálarfræði, heimspeki og félagsfræði, samhliða þjálfun í kennslu og miðlun á vettvangi bæði innan skólakerfisins og utan þess.
Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og þekkingu á starfi kennarans, bæði fræðilega og á vettvangi. Þeir geti skipulagt nám og námsþætti út frá gildandi námskrám og valið námsgögn, náms- og matsaðferðir við hæfi. Kennsla og miðlun eru einnig skoðuð í víðara samhengi og nemendur hvattir til að setja fram eigin sýn og hugmyndir um nám og námsframboð í samfélaginu.