Síðbúnir útgáfutónleikar Berglindar Maríu Tómadóttur.
Árið 2021, gaf ég út þrjár plötur. Ég hélt þó enga útgáfutónleika til að fagna þessum áfanga enda heimsfaraldur enn yfirstandandi.
Nú hyggst ég bæta úr því með tónleikum í Áskirkju. Verkin á efnisskránni eru annars vegar af plötunni Ethereality sem inniheldur verk fyrir flautu og hins vegar verk fyrir Lokk sem finna má í ólíkri mynd á plötunum Tónlist fyrir Lokk og Lokkur -- hljóðbréf. Með mér á tónleikunum verður Jesper Pedersen og mun hann halda utan um rafmynd tónleikanna.
Höfundar verka á tónleikunum eru Anna Þorvaldsdóttir, Lilja María Ásmundsdóttir, Tryggvi M. Baldvinsson auk flytjenda.
Sérstakur gestur er Anna María Bogadóttir en hún mun lesa úr nýútkominni bók sinni, Jarðsetning
Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði.
Tónleikarnir verða haldnir í Áskirkju, sunnudaginn 11. desember kl. 17:00 og aðgangur er ókeypis.
Tónleikar í Áskirkju
sunnudaginn 11. desember 2022 kl. 17:00
aðgangur ókeypis
Í upphafi og um miðja stund les Anna María Bogadóttir úr nýrri bók sinni, Jarðsetning
EFNISSKRÁ
og brenna eins og fuglinn inn í eilífðina ...
Lilja María Ásmundsdóttir
Riposo
Tryggvi M. Baldvinsson
Ethereality
Anna Þorvaldsdóttir
Bambaló
Berglind María Tómasdóttir
Lokkur
Berglind María Tómasdóttir og Jesper Pedersen
Paula's Song
Berglind María Tómasdóttir