Önnur málstofa um aðgengi verður haldin miðvikudaginn 7. Desember kl 12:15 – 13:30 í arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands að Þverholti 11, fyrirlestrarsal A í kjallara.
Þátttaka er opin öllum.
Léttar veitingar í boði.
 
7. desember
Hoppaðu bara út í ! Náttúrubaðsvæði og aðgengismál.
Málstofa á vegum FILA + HMS + ÖBÍ 
 
Erindi:
Ómar Ingþórsson frá EFLU, landslagsarkitekt FÍLA.
Harpa Cilia Ingólfsdóttir byggingafræðingur og ráðgjafi í algildri hönnun hjá HMS
Birna Einarsdóttir, stjórnarmaður Gigtarfélags Íslands
 
Málstofur um aðgengi er liður í samstarfi um upplýsingagjöf um algilda hönnun. 
Þann 5. maí s.l. var undirrituð samstarfsyfirlýsing ÖBÍ réttindasamtaka, Arkitektafélags Íslands (AÍ), Félags íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA), Félags húsgagna- og innanhússarkitekta (FHI), Byggingafræðingafélags Íslands (BFÍ) og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um bætta upplýsingagjöf í aðgengismálum fyrir hönnuði í mannvirkjagerð.
 
Með samstarfi þessu er opnað á nauðsynlegt samtal með því markmiði að allir geta notið hins manngerða umhverfis. Þannig er stuðlað að meira jafnrétti fatlaðra og ófatlaðra í hinu daglega lífi.