Birna Geirfinnsdóttir, grafískur hönnuður og prófessor í grafískri hönnun, Arnar Freyr Guðmundsson grafískur hönnuður og stundakennari í grafískri hönnun og Fraser Muggeridge grafískur hönnuður og gestaprófessor við hönnunardeild opna sýningu á grafískri hönnun Dieter Roth í Hönnunarsafni Íslands föstudaginn 28. október klukkan 18:00.
 
Á sýningunni er lögð áhersla á að sýna úrval verka Dieters sem flokkast undir grafíska hönnun og hafa mörg hver ekki fengið mikla athygli hingað til. Líftími verkanna er oft ekki langur, þau ekki talin verðmæt og fá eintök hafa varðveist. Þessi verkefni dýpka þekkingu okkar á þróun grafískrar hönnunar. Óhætt er að segja að Dieter Roth (1930-1998) sé í hópi frumkvöðla sem mótuðu grafíska hönnun á Íslandi og víðar.
 
Við hvetjum áhugafólk um hönnun og myndlist til að láta þessa sýningu ekki framhjá sér fara!