Sneiðmynd: Katrín Ólína Pétursdóttir - „Samband mitt við teikniforritið Adobe Illustrator“ 

Sneiðmynd, fyrirlestrarröð arkitektúr- og hönnunardeilda Listaháskóla Íslands hefst miðvikudaginn 19. október næst komandi.
 
Fyrsti fyrirlesari skólaárið 2022- 2023 er Katrín Ólína Pétursdóttir, hönnuður og deildarforseti hönnunardeildar með fyrirlesturinn „Samband mitt við teikniforritið Adobe Illustrator“. Fyrirlesturinn fer fram miðvikudaginn 19. október klukkan 12:15 í fyrirlestrarsal A, Þverholti 11. Öll hjartanlega velkomin.
 
Katrín Ólína hóf að vinna með teikniforritið Illustrator, sem er eitt helsta teikniforrit í hönnunarfaginu, árið 1998. Á ferli sínum hefur hún nýtt það til að vinna fjölda af verkum, allt frá grafík á fatnað yfir í stór grafíkverk í rými. Í fyrirlestrinum kynnumst við nálgun hennar og hvernig hún þróaði verk sín með forritinu.
Katrín Ólína hefur víðtæka starfsreynslu þvert á greinar hönnunar og hefur starfað að hönnun erlendis og hérlendis frá því hún lauk námi 1995.
Síðustu ár hafa rannsóknir verið stór þáttur í hönnun Katrínar en hún gengdi m.a. gestarannsóknarstöðu við Aalto háskólann í Helsinki árin 2014 til 2016 og aftur frá 2019 til 2020 auk þess að taka þátt í þverfaglegum rannsóknarverkefnum.
Katrín Ólína hefur viðamikla reynslu af kennslu og akademískum störfum en hún var m.a. fyrsti fagstjóri þrívíðrar hönnunar við stofnun LHÍ og tók þátt í þróun og uppbyggingu hönnunarnáms á háskólastigi. Hún hefur starfað sem deildarforseti hönnunar frá 2021.
 
1.katrinolina.jpeg
 

 

 
 
SNEIÐMYND 2022-2023
Öflugt rannsóknarstarf kennara við arkitektúrdeild og hönnunardeild er undirstaða þekkingarsköpunar, hugmyndafræðilegrar endurnýjunar og listrænnar nálgunar sem miðlað er til nemenda í gegnum kennslu og til samfélagsins með þátttöku í ýmsum verkefnum á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.
Í fyrirlestraröðinni Sneiðmynd kynna kennarar hönnunardeildar og arkitektúrdeildar eigin rannsóknir og listsköpun og ræða tengsl þeirra við kennslu í deildinni.
Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og er fagfólk, nemendur og áhugafólk um hönnun og arkitektúr hvatt til að mæta.
Sneiðmynd haust 2022 hefst 19. október næst komandi, allir fyrirlestrar fara fram á miðvikudögum kl 12:15 - 13:00 í fyrirlestrarsal A, Þverholti 11
 
Dagskrá Sneiðmyndar 2022 - 2023:
Miðvikudagar 12:15 – 13:00 í fyrirlestrarsal A

Miðvikudagur 19.október
Katrín Ólína Pétursdóttir, hönnuður og deildarforseti hönnunardeildar

Miðvikudagur 16. nóvember
Anna María Bogadóttir, arkitekt og lektor við arkitektúrdeild

Miðvikudagur 18. janúar
Adam Flint, grafískur hönnuður og lektor við hönnunardeild

Miðvikudagur 22. febrúar
Anna Diljá Sigurðardóttir, vöruhönnuður og aðjúnkt við hönnunardeild

Miðvikudagur 15. mars
Óskar Örn Arnórsson, arkitekt, arkitektúrsagnfræðingur og lektor við arkitektúrdeild

Miðikudagur 19. apríl
Uta Reichardt, rannsakandi og gestakennari við hönnunardeild