Ungir einleikarar 2022

Miðvikudaginn 25.maí, munu sigurvegarar í keppninni Ungir Einleikarar 2022 flytja einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tónleikarnir fara fram í Eldborgarsal Hörpu og hefjast kl. 19:30. 

Einleikararnir að þessu sinni eru þau Birkir Örn Hafsteinsson klarínettuleikari, Ingibjörg Ragnheiður Linnet trompetleikari og Hanna Ágústa Olgeirsdóttir söngkona.

ue-04.jpg
 

 

Nánar um Unga einleikara

Samkeppni ungra einleikara var haldin í vikunni 18-22. október síðastliðinn og er það í nítjánda sinn sem að keppnin fer fram. Keppnin er samstarfsverkefni LHÍ og Sinfóníuhljómsveitar Íslands en sigurvegarar keppninnar fá tækifæri til þess að flytja einleik á Eldborgarsviði Hörpu ásamt sinfóníuhljómsveitinni.

Að þessu sinni tóku 8 flytjendur þátt í lokaumferð keppninnar og var dómnefnd skipuð þeim Önnu-Marie Helsing, hljómsveitarstjóra, Árna Heimi Ingólfssyni, tónlistarfræðingi og píanóleikara, Dísellu Lárusdóttur, söngkonu, Joe Ognibene, hornleikara og Gretu Salóme Stefánsdóttur fiðluleikara. Nefndin átti úr vöndu að ráða, en komust þó að þeirri niðurstöðu að eftirfarandi flytjendur ættu erindi upp á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í maí næstkomandi:

- Birkir Örn Hafsteinsson, klarínettuleikari

- Ingibjörg Ragnheiður Linnet, trompetleikari

- Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, söngkona

Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir mezzósópran var einnig einn af  sigurvegurum keppninnar í ár, en af óviðráðanlegum orsökum frestast framkoma hennar á tónleikunum þar til á næsta ári.