Lónið

Fjórar mannverur stíga út fyrir þægindarammann í leit að hugarró og vellíðan í amstri hversdagsins. Þau leggja af stað í sjálfnærandi ferðalag, fyrir líkama og sál, en að ná fulkominni slökun hefur aldrei verið eins mikilvægt og á tímum sem þessum. Nú þarf að sigra hugann, örva skilningarvitin og komast í tengsl við líkama og sál. Ekkert má út af bregða.

„Bara ef þið vissuð hvað væri í gangi. Það eru pappírar. Skjöl. Leynileg skjöl. Almenningur fær ekki aðgang að þessum skjölum. Ég og þú? Nei, nei. En þau eru til. Sama hvort þú trúir á þau eða ekki. Og þau eru stórhættuleg. Ég væri bara til í að fá að sjá þessi skjöl. Fá þetta á hreint. Er það svo flókið? Er eitthvað að mínum augum svo ég fái ekki á þessi skjöl litið? Sko. Ég er að segja ykkur það. Það eru hlutir í gangi hérna sem þið hafið ekki hugmynd um. “

Aðstandendur //

Leikstjórn: Magnús Thorlacius

Flytjendur: Bjartey Elín Hauksdóttir, Jökull Smári Jakobsson, Melkorka Gunborg Briansdóttir

Tónlist og hljóðmynd: Ísidór Jökull Bjarnason

Myndbönd: Hákon Örn Helgason, Nikulás Tumi Hlynsson

Aðstoðarleikstjórn og sviðshreyfingar: Ragnhildur Birta Ásmundsdóttir

Samsköpun: Bjartey Elín Hauksdóttir, Hákon Örn Helgason, Jökull Smári Jakobsson, Magnús Thorlacius, Melkorka Gunborg Briansdóttir, Nikulás Tumi Hlynsson, Vigdís Halla Birgisdóttir

Aðstoð við búninga: Annalísa Hermannsdóttir

Aðstoð við leikmynd: Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir

Aðstoð við leikmyndasmíði: Egill Ingibergsson

Aðstoð við tækni: Guðmundur Felixson

Ljósmyndir fyrir plakat: Nikulás Tumi Hlynsson

Leiðbeinendur: Karl Ágúst Þorbergsson, Tryggvi Gunnarsson

Leiðbeinendur lokaverkefna //

Karl Ágúst Þorbergsson 

Anna María Tómasdóttir

Saga Sigurðardóttir

Tryggvi Gunnarsson

Þakkir //

Annalísa Hermannsdóttir, Björg Steinunn Gunnarsdóttir, Drangey, Fjölnir Gíslason, Anna María Tómasdóttir, Saga Sigurðardóttir, mamma og pabbi og bekkurinn.

Ágrip //

Magnús Thorlacius er sviðshöfundur með meiru; ljósamaður í sjálfstæðu leikhússenunni, skúffuskáld, pistlahöfundur og upprennandi leikskáld og leikstjóri. Í gegnum námið hefur Magnús einblínt á skrif og leikstjórn, en hann setti upp einleik um sjálfsmynd Verzlunarskóla Íslands, leikgerð af Dýrabæ eftir George Orwell og uppfærslu á Lungunum eftir Duncan Macmillan svo fátt eitt sé nefnt. Nú er kominn tími til að sviðsetja síðkapítalíska drauminn út frá baðlónamenningu á Íslandi.