Anna Dröfn Ágústsdóttir, fagstjóri fræða við Hönnunardeild Listaháskólans og Guðni Valberg arkitekt, hlutu nýverið tilnefningu til Viðurkenningar Hagþenkis 2021 fyrir bókina LAUGAVEGUR sem kom út í nóvember á síðasta ári. Hönnun bókarinnar er í umsjón Birnu Geirfinnsdóttur dósents við Hönnunardeild skólans og Arnars Freys Guðmundssonar en saman skipa þau Studio Studio. 

Viðurkenning Hagþenkis verður veitt í samstarfi við Borgarbókasafnið og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, við hátíðlega athöfn um miðjan marsmánuð.

Listaháskólinn óskar aðstandendum þessarar frábæru bókar hjartanlega til hamingju með tilnefninguna. 

Nánar um bókina LAUGAVEGUR: Byggingar- og verslunarsaga aðalgötu Reykjavíkur er hér sögð í máli og myndum og tilraun gerð til að útskýra hvers vegna þessi þekkta gata hefur þróast með þeim hætti sem raun ber vitni. Líklega endurspeglar engin gata á landinu jafn vel tíðarandann í borginni á hverjum tíma og Laugavegur. Fjallað er um þróun borgarrýmisins og húsin sem eru, voru og ekki urðu, en í bókinni er að finna fróðleik um fleiri en hundrað húsnúmer við Bankastræti og Laugaveg.

Anna Dröfn og Guðni Valberg eru einnig höfundar bókarinnar Reykjavík sem ekki varð sem kom út árið 2014 en hún var endurprentuð í þrígang og er nú ófáanleg.