Árið 2020 ákvað listkennsludeild LHÍ að blása lífi í fallega hugmynd sem fæddist í náminu, í tilefni af degi listkennarans fyrir nokkrum árum.
Þá útbjó nemendahópur svona bolla, fór með og gaf uppáhalds kennaranum sínum og sagði viðkomandi hvaða áhrif þau höfðu haft á sig með viðmóti sínu og kennsluháttum. Bollarnir, sem keyptir voru á nytjamarkaði með sjálfbærni að leiðarljósi og merktir, hafa vakið mikla lukku.
Við í Listaháskólanum þökkum Lilju Dögg Alfreðsdóttur fyrir samstarfið og óskum henni velfarnaðar í nýju ráðuneyti og hlökkum til að starfa með nýju fólki, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur háskólaráðherra og Ásmundi Einar Daðasyni skólamálaráðherra.