ÞRÆÐIR kalla eftir efni í 7. tölublað
 
ÞRÆÐIR er vefrit gefið út árlega af tónlistardeild Listaháskóla Íslands og hefur það hlutverk að skapa vettvang, aðhald og hvata fyrir hvers konar rannsóknarvinnu tengda tónlist, innan sem utan Listaháskólans.
 
Kallað er eftir efni í 7. tölublað
Lengd texta: 500 - 5000 orð
Skilafrestur texta: 1. mars 2022
Berist til: threads [at] lhi.is
 
Texta skal senda inn sem .doc/docx skrá. Myndskrár skal senda sér: 300dpi (.tif, .png, .jpg, .pdf). Stuðst er við Chicago stílinn (https://vefir.hi.is/chicagoleidbeiningar/).
Í þessu tölublaði verður lögð áhersla á þýðingar þekktra greina innan tónlistarsögunnar en jafnt sem áður verður einnig um opinn vettvang og mikinn sveigjanleika varðandi innsent efni:
 
Fræðilegar greinar, umfjöllun um tónverk/flutning, listræn nálgun, aðferðafræði, þýðingar, listræn manifestó (yfirlýsingar), frjálslegar pælingar varðandi tónlistarstarf / kennslu / list höfunda eða annarra eru dæmi um tegundir texta.
 
Höfundar eru hvattir til að nýta sér stafrænt umhverfi ritsins og bæta við hljóð-, vídeó- og myndskrám.
Greinar verða ekki ritrýndar að þessu sinni en tímaritið stefnir á að innihalda bæði ritrýnt og óritrýnt efni.
Vefritið leggur áherslu á íslenska tungu en þó verður einnig tekið á móti textum á ensku.
 
Nánar um Þræði
Með vefritinu viljum við auka umsvif rannsókna á sviði tónlistar, skapa ný tækifæri og hvata, varðveita og miðla þekkingu og vera vettvangur sjónarhorna innan tónlistar. Þræðir leggja áherslu á orðræðu um tónlist á íslensku máli.
 
Viðmið varðandi innsenda texta:
Tegundir texta: Fræðilegar greinar, umfjöllun um tónverk/flutning, listræn nálgun, aðferðafræði, þýðingar, listræn manifestó (yfirlýsingar), frjálslegar pælingar varðandi tónlistarstarf/kennslu/list viðkomandi eða annarra.
 
Tímaritið er opið fyrir uppástungum hverju sinni varðandi efni eða textagerða og má hér nefna sem dæmi umfjöllun eða úttekt á bókum, geisladiskum, tónleikum, hátíðum, og fleira. Einnig mætti hugsa sér heimildavinnslu eða viðtöl á myndbandsformi eða hljóðformi.
 
Leitast verður við að virkja nokkur lykilhugtök varðandi efni og gerð texta. Aðferðir til að skapa þekkingu og skilning: „reflection“ eða ígrundun (í framkvæmd eða eftir framkvæmd), rýni (á eigin list eða annarra), tengsl (finna tengsl, búa til tengsl), samhengi, og bakvinnslu / ferli (hvað liggur að baki, umhverfis, framundan).​
 
Ritstjórn Þráða skipa Atli Ingólfsson, Einar Torfi Einarsson og Þorbjörg Daphne Hall.
 
Frekari upplýsingar er að finna á vefsvæði Þráða: https://www.lhi.is/thraedir
 
1496194_1046391375406388_965970020079951873_o.jpeg