Hönnunarverðlaun Íslands 2021

Hönnunarverðlaun Íslands 2021 voru afhent í áttunda sinn 29. október síðastliðinn við hátíðlega athöfn í Grósku. Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi og voru að þessu sinni 5 verkefni tilnefnd.
 
Í ár þótti verkefnið Hjaltalín - ∞ skara fram úr og afhenti Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra því aðstandendum þess, hönnuðinum Sigurði Oddsyni, myndhöggvaranum Matthíasi Rúnari Sigurðssyni og þrívíddarhönnuðinum Gabríel Benedikt Bachmann Hönnunarverðlaun Íslands 2021.
 
cc1c4ddd-a11d-4c25-b27b-03cc61a5adf0_20x30cmhvi_w8a9314.jpeg
 

 

Umsögn dómnefnd:

„Platan „∞“ er tímalaust tímamótaverk í myndrænni og þrívíðri nálgun. Í hönnun fjórðu breiðskífu hljómsveitarinnar Hjaltalín veltir Sigurður Oddsson, grafískur hönnuður og listrænn stjórnandi verksins, upp hugmyndum um varanleika og hlutgervingu tónlistar í samtali og samvinnu við myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson og þrívíddarhönnuðinn Gabríel Benedikt Bachmann. 

Ferlið við tónsmíðar og plötuútgáfu er hugræn meðganga, hugarfóstur tónlistarfólks sem í ferlinu tekur á sig mynd, vex og dafnar. Útgáfa plötunnar er svo fæðingin, tímamót og afurðin endanleg. Óhagganleg og eilíf, meitluð í stein.

Í meðförum teymisins er hljóðheimur sköpunar hlutgerður sem úlfabarn, höggmynd úr basalti sem er jafnframt teiknuð og vistuð í þrívíðu stafrænu formi til þess að hámarka endingartíma og auðvelda birtingarmynd þess á ólíkum miðlum. Úlfabarninu er ætlaður endanlegur hvílustaður hjá Úlfarsfelli, sem þrívíður minnisvarði um tilvist útgáfunnar, sem nær langt umfram þá sem tíðkast hefur í plötuútgáfu til þessa. 

Myndræn framsetning er óaðfinnanleg. Samspil ljóss og skugga skapar einstaka kyrrð og hlýju. Stund frosin í tíma. Leturval er vel við hæfi og táknróf plötunnar vísar smekklega í gyllta plötu Voyager geimfarsins sem er flöskuskeyti mannkyns út fyrir okkar sólkerfi. Það er mat dómnefndar Hönnunarverðlauna Íslands árið 2021 að hönnun plötuumslags og heildarútfærsla „∞“ sé einstaklega sterkt heildrænt verk og metnaðarfullur minnisvarði um samspil tónlistar og hönnunar til framtíðar.“

 

Dómnefnd í ár skipuðu þau María Kristín Jónsdóttir/Sigríður Sigurjónsdóttir, formenn (Hönnunarsafn Íslands), Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt (LHÍ), Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður (MH&A), Margrét Kristín Sigurðardóttir (SI), Katarina Siltavuori, framkvæmdastjóri Archinfo í Finnlandi (MH&A) og Ragna Fróðadóttir, textíl- og fatahönnuður, og framkvæmdastjóri Edelkoort Inc (MH&A).
 
Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.