Útskriftarverkefni sviðshöfunda 2021
 
Útskriftarnemendur á sviðhöfundabraut sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands hafa nú lokið sýningum á lokaverkefnum sínum. Upptökur af verkunum eru nú komnar inn á Vimeo síðu Sviðslistadeildar og geta áhugasamir notið þeirra þar.
 
Í ár útskrifuðust 8 nemendur af sviðshöfundabraut. Verkefni þeirra spanna vítt svið sviðslistanna og taka á fjölbreyttum málefnum, allt frá sjálfsævisögulegri leikritun og biðstöðu yfir afleiðingar ofbeldis og kúgunar og leitar að manni sem spilar á banjó. Öll eiga verkefnin það sameiginlegt að nálgast sviðslistamiðilinn á tilraunakenndan og gagnrýnin hátt með forvitni að vopni.  
 
Um sviðshöfundanámið 
Á sviðshöfundabraut er unnið með hlutverk sviðshöfundarins í sviðslistum þ.e. leikstjórans, leikskáldsins eða sviðslistamannsins. Megin áhersla er lögð á að nemendur þrói með sér listræna sýn og nálgun við miðilinn sem höfundar og verði að námi loknu sjálfstæðir skapandi sviðslistamenn.  
 
Í náminu, sem er jöfnum höndum fræðilegt og verklegt, er lögð áhersla á sviðslistir í sem víðustum skilningi og er námið hugsað sem vettvangur fyrir tilraunir og rannsóknir innan sviðslista. Námið snýst um sögu, eðli, hlutverk og mörk sviðslista, tungumál þeirra og snertifleti við aðrar listgreinar. 
 
Leiðbeinendur lokaverkefna:  
Karl Ágúst Þorbergsson  
Gréta Kristín Ómarsdóttir 
Hafliði Arngrímsson  
Hilmir Jensson 
Saga Sigurðardóttir 
 
ÚTSKRIFTARNEMENDUR 2021 og vimeo linkar á útskriftarverk þeirra:
 
Annalísa Hermanssdóttir – Og svo er nótt
 
Brynhildur Sigurðardóttir - Keðjuverkun
 
Hákon Örn Helgason – Jesú er til, hann spilar á banjó 
 
Assa Borg Snævarr Þórðardóttir – Til æviloka 
 
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir – KÁM-Þeir síðustu verða fyrstir 
 
Tumi Björnsson – Horfir þú á Glám? 
 
Monika Kiburyte – D.+ D. & Co.  Volume 1 
 
Hjalti Vigfússon –  Krókódílasótt 
 
Nánari upplýsingar um hvert og eitt verk má finna HÉR á LHÍ síðunni undir yfirskriftinni öll útskriftarverk.