Námskeiðið er tvíþætt.
Annars vegar verður sjónum beint að listasögu fatlaðra listamanna. Fjallað verður um ólíka listamenn, einkenni og áherslur í verkum hvers og eins og lesið í listaverkin jafn óðum.
Eins verður fjallað um fötlunarlist, upphaf hennar og hvernig listin er nýtt til að ögra samfélagslegum hugmyndum um fötlun.
Hins vegar vinna ófatlaðir og fatlaðir nemendur/listamenn saman í pörum að sameiginlegri, óvænti lokaútkomu.
Í hverju pari er einn fatlaður listamaður og einn ófatlaður listamaður. Pörin stilla saman strengi og vinna að sameiginlegri óvæntri lokaútkomu. Gerðar verða allskonar liðleikaæfingar sem ýta undir frelsi í sköpun.
Átta þátttakendur verða á námskeiðinu. Fjórir fatlaðir nemendur og fjórir ófatlaðir nemendur.
Námskeiðið er hluti af meistaraverkefni Hörpu Björnsdóttur, sjónlistakonu og meistaranema í listkennsludeild LHÍ á vorönn 2021.
Í lok námskeiðsins eiga nemendur að:
• hafa fengið innsýn í sögu fatlaðra listamanna og fötlunarlistar
• þekkja muninn á fötlunarlist og listsköpun fatlaðs fólks
• geta nýtt sér mismunandi liðleikaæfingar til að örva flæði hugmynda og frelsi í sköpun með áherslu á leikgleði og að sleppa tökunum á því sem þykir "fullkomið"
• geta séð möguleika í samvinnu og samtali í þeim tilgangi að dýpka hugmyndavinnu sína og geta unnið úr þeim með skapandi hætti
• hafa unnið verk í sameiningu/pari og þannig haft áhrif á sköpun hvers annars
Námsmat: Símat, þátttaka, verklegar æfingar og einstaklings- og paraverkefni. Staðið/fall með umsögn.
Kennari: Harpa Björnsdóttir, meistaranemi í listkennsludeild.
Umsjón: Ingimar Ó. Waage, fagstjóri í listkennsludeild.
Kennslutungumál: Íslenska.
Forkröfur: Stúdentspróf. Starfsbrautarpróf.
Staður og stund: LHÍ Laugarnesi. Stofa: L191/Finnland.
Aðgengi er fyrir notendur hjólastóla.
Athugið að gæta þarf vel að persónulegum sóttvörnum í staðnámi í LHÍ.
Kennsludagar: Miðvikudagar og föstudagar frá 15 -17. 2 x 50 mínútna tímar með hléi á milli.
24. febrúar og 26. feb
3. og 5. mars
10. og 12. mars
17. og 19. mars
24 og 26.mars
3. og 5. mars
10. og 12. mars
17. og 19. mars
24 og 26.mars
Tímabil: 24. febrúar - 26. mars 2021.
Einingar: 2 ECTS.
Verð: 5.000 kr. (án eininga) / 15.000 kr. (með einingum). Verð miðast við að námskeiðið er hluti af lokaverkefni meistaranema, kennt undir leiðsögn fagstjóra í listkennsludeild.
Nánari upplýsingar: Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, verkefnastjóri Listkennsludeildar. olofhugrun [at] lhi.is / 520 2409