Hin sívinsæla hádegistónleikaröð söngbrautar LHÍ og Listasafns Reykjavíkur hefst á nýjan leik.
Á hverjum tónleikum fléttast efnisskráin í kringum tiltekið þema, allt frá ramíslenskum Þorra yfir í söngleikjatónlist.
Konudagurinn er handan við hornið og því tilvalið að heiðra nokkur vel valin kventónskáld sem prýða efnisskránna að þessu sinni - Áfram konur!
 
Tónleikarnir fara fram á miðvikudögum kl. 12:15 á Kjarvalsstöðum.
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

 
Gleym-mér-ei - Hádegistónleikar
miðvikudaga kl. 12:15 á Kjarvalsstöðum
 
  • 29. janúar - Þjóðlegt á Þorra
  • 5. febrúar - Dona nobis pacem
  • 12. febrúar - Allt fyrir ástina
  • 19. febrúar - Áfram konur
  • 26. febrúar - The show must go on
  • 4. mars - Heimur óperunnar