ÞRÆÐIR er vefrit gefið út árlega af Tónlistardeild Listaháskóla Íslands og hefur það hlutverk að skapa vettvang, aðhald og hvata fyrir hvers konar rannsóknarvinnu tengda tónlist, innan sem utan Listaháskólans.

 

Kallað er eftir efni í 5. tölublað

Lengd texta: 500 - 5000 orð

Skilafrestur texta: 2. mars 2020 Berist til: threads [at] lhi.is

Texta skal senda inn sem .doc/docx skrá. Myndskrár skal senda sér: 300dpi (.tif, .png, .jpg, .pdf))

Lögð er áhersla á opinn vettvang og mikinn sveigjanleika varðandi tegundir texta og innsent efni:

Fræðilegar greinar, umfjöllun um tónverk, listræn nálgun, aðferðafræði, þýðingar, listræn manifestó (yfirlýsingar), frjálslegar pælingar varðandi tónlistarstarf / kennslu / list höfunda eða annarra eru dæmi um tegundir texta.

Höfundar eru hvattir til að nýta sér stafrænt umhverfi ritsins og bæta við hljóð-, vídeó- og myndskrám.

Greinar verða ekki ritrýndar að þessu sinni en tímaritið stefnir á að innihalda bæði ritrýnt og óritrýnt efni.

Vefritið leggur áherslu á íslenska tungu en þó verður einnig tekið á móti textum á ensku.

 

Nánar um Þræði

Með vefritinu er stefnt að því að auka umsvif rannsókna á sviði tónlistar, skapa ný tækifæri og hvata, og vera miðstöð sjónarhorna innan tónlistar.

Þræðir skulu vera vettvangur fyrir:

· Orðræðu um tónlist á íslensku máli

· Miðlun þekkingar

· Varðveislu rannsókna

 

Viðmið varðandi innsenda texta:

Tegundir texta: Fræðilegar greinar, umfjöllun um tónverk, listræn nálgun, aðferðafræði, þýðingar, listræn manifestó (yfirlýsingar), frjálslegar pælingar varðandi tónlistarstarf/kennslu/list viðkomandi eða annarra

Tímaritið er opið fyrir uppástungum hverju sinni varðandi efni eða textagerða og má hér nefna sem dæmi umfjöllun eða úttekt á bókum, geisladiskum, tónleikum, hátíðum, og fleira. Einnig mætti hugsa sér heimildavinnslu eða viðtöl á myndbandsformi eða hljóðformi

Leitast verður við að virkja nokkur lykilhugtök varðandi efni og gerð texta. Aðferðir til að skapa þekkingu og skilning: „reflection“ eða ígrundun (í framkvæmd eða eftir framkvæmd), rýni (á eigin list eða annarra), tengsl (finna tengsl, búa til tengsl), samhengi, og bakvinnslu / ferli (hvað liggur að baki, umhverfis, framundan).

Grunnflokkar: Tónsmíðar / tónskáld / tónfræði / tónlistarfræði / flytjendur & flutningur / kennsla / gagnrýni / umfjöllun / dómur / annað

 

Ritstjórn Þráða skipa Atli Ingólfsson, Einar Torfi Einarsson og Þorbjörg Daphne Hall.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsvæði Þráða