Dagana 25. og 26. október 2019 fer fram samkeppnin „Ungir einleikarar“ en þetta er í sautjánda sinn sem keppnin er haldin. Listaháskóli Íslands og Sinfóníuhljómsveit Íslands hafa frá upphafi staðið að baki keppninni sem fyrst fór fram 2003 en fyrir tilstilli hennar hafa tugir ungra einleikara og einsöngvara fengið tækifæri til að koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Dómnefndin getur valið allt að fjóra þátttakendur sem munu koma fram á tónleikum með Sinfóníuhljómsveitinni 16. janúar 2020, í Eldborg, Hörpu. Hljómsveitarstjóri verður Anna-Maria Helsing.

Samkeppnin er opin þeim sem stunda nám í hljóðfæraleik eða söng á bakkalárstigi eða fyrsta háskólastigi, eru íslenskir ríkisborgarar eða erlendir ríkisborgarar sem hafa verið búsettir á Íslandi í að minnsta kosti eitt ár og eru þrjátíu ára eða yngri árið sem keppnin er haldin (fædd 1989 eða síðar). Við skráningu í keppnina skal tilgreint hvaða verk viðkomandi muni flytja í keppninni. Skilyrði fyrir verkefnavali er að nemandi flytji sömu efnisskrá á tónleikunum og hann flytur í keppninni. Hljóðfæraleikarar flytja verk fyrir einleikara og hljómsveit í fullri lengd og söngvarar flytja einsöngsverk með hljómsveit (aríur og eða ljóð) að hámarki 25 mínútur. Þátttakendur útvega sjálfir meðleikara sem fram koma með þeim í keppninni. 

Keppnin verður haldin í Kaldalóni, Hörpu, föstudaginn 26. október og laugardaginn 27. október 2019 eins og áður sagði. Umsóknarfrestur er til miðnættis 1. október 2019. Upplýsingar um keppnina veitir Elísabet Indra Ragnarsdóttir, verkefnastjóri tónlistardeildar LHÍ (indra [at] lhi.is). Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á vef keppninnar og þar er einnig hægt að kynna sér reglur keppninnar.

Sigurvegarar í keppninni Ungir einleikarar

2019
Guðbjartur Hákonarson, fiðla
Harpa Ósk Björnsdóttir, söngur
Hjörtur Páll Eggertsson, selló
Silja Elsabet Brynjarsdóttir, söngur

2018
Ásta Kristín Pjetursdóttir, víóla
Bryndís Guðjónsdóttir, söngur
Guðmundur Andri Ólafsson, horn
Romain Þór Denuit, píanó

2017
Auður Edda Erlendsdóttir, klarinett,
Herdís Mjöll Guðmundsdóttir, fiðla
Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, selló
Jóna G. Kolbrúnardóttir, söngur

2016 
Heiðdís Hanna Sigurðardóttir, söngur
Ragnar Jónsson, selló
Sigríður Hjördís Indriðadóttir, flauta
Jónas Ásgeirsson, harmóníkka 

2015 
Baldvin Oddsson, trompet
Erna Arnardóttir, píanó
Lilja Ásmundsdóttir, píanó
Steiney Sigurðardóttir, selló

2014 
Sölvi Kolbeinsson, saxófónn
Baldvin Ingvar Tryggvason, klarínetta
Björg Brjánsdóttir, flauta
Rannveig Marta Sarc, fiðla

2013 
Einar Bjartur Egilsson, píanó
Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, selló
Unnsteinn Árnason, söngur
Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla

2012
Crissie Thelma Guðmundsdóttir, fiðla
Elín Arnardóttir, píanó
Hrafnhildur Árnadóttir, söngur
Ísak Ríkharðsson, fiðla

2011 
Andri Björn Róbertsson, söngur 
Birgir Þórisson, píanó
Jane Ade Sutarjo, píanó

2010 
Helga Svala Sigurðardóttir, flauta
Matthías Sigurðsson, klarínetta
Hafdís Bjarnadóttir, tónskáld
Anna Þorvaldsdóttir, tónskáld

2009 
Bjarni Frímann Bjarnason, fiðla
Hulda Jónsdóttir, fiðla
Nathalía Druzin Halldórsdóttir, söngur

2008 
Theresa Bokany, fiðla
Joakim Páll Palomares, fiðla
Arngunnur Árnadóttir, klarínetta
Hákon Bjarnason, píanó

2007
Egill Árni Pálsson, söngur
Grímur Helgason, klarinett
Eygló Dóra Davíðsdóttir, fiðla

2006 
Jóhann Nardeau, trompet
Júlía Mogensen, selló
Guðný Jónasdóttir, selló
Gunnhildur Daðadóttir, fiðla

2005 
Hafdís Vigfúsdóttir, flauta
Sólveig Samúelsdóttir, sópran

2004 
Melkorka Ólafsdóttir, flauta
Gyða Valtýsdóttir, selló
Helga Björgvinsdóttir, fiðla
Ingrid Karlsdóttir, fiðla