MYNDLIST, HÖNNUN, DANS OG TÓNLIST 

Listkennsludeild Listaháskóla Íslands býður upp á listnámskeið fyrir áhugasama krakka í 4.- 6. bekk. Kennarar á námskeiðunum eru listamenn og hönnuðir sem leggja stund á listkennslunám. 
 
Tímarnir eru á þriðjudögum kl. 14:30 - 16:30 í húsnæði listkennsludeildar, Laugarnesvegi 91. Námskeiðið er 10 skipti og hefst 18. september og stendur til 4. desember. (Ath. - Ekki er kennsla 25. sept. og 16. okt.)
 
Einungis eru 20 pláss í boði og fyrst skrá- fyrst fá! Verð: 15.000.- kr. 
 
Umsjón: Ingimar Ólafsson Waage, aðjúnkt í kennslufræðum.
SKRÁNING: gudnyr [at] lhi.is