Selma María Cassaro 
karlMennska - Mennskur karl 

  
Við getum klætt okkur í einkennisbúning en komumst við einhvern tímann úr honum? Einkennisbúningurinn er oft notaður til að mynda heild. Jafnvel fela það sem í raun og veru býr í manninum ef það er ólíkt „norminu“ í stað þess að leyfa innra sjálfinu að skína. 
  
Munstrin í línunni eru afrísk munstur og hafa þau öll sína merkingu. 
Karlkyns páfugl er litríkur og skreyttur. Hann stendur fyrir þá fegurð sem okkur getur áskotnast þegar við leitumst við að sýna okkar sönnu liti.  
Hvítir og svartir ferningar tákna aðskilnað fáfræði og þekkingar. Hvítur táknar upphaf náms og lærdóms en svartur uppsöfnun visku.  
  
Drekaflugan táknar breytingu á eigin sjálfsmynd, skilning á dýpri merkingu lífsins og aðlögunarhæfni.