Listkennsludeild
Nemendur í meistaranámi í listkennslu og nemendur í diplómanámi í listkennslu hafa heimild til að taka námið á lengri tíma og dreifast þá skólagjöld yfir lengri tíma.
 
Dæmi: Í meistaranámi í listkennslu er upphæðin fyrir hálft nám 414.135.- kr. fyrir allan veturinn 2023-2024 (sama hvort viðkomandi taki 18 ein á haust önn og 12 eða 15 á vorönn = samtals að hámarki 33 ein yfir veturinn) eða 207.068.- kr. per önn.
 
Það sama á við um diplómanám í listkennslu. Þar er 33 einingum skipt á lengri tíma og hægt að greiða hálf skólagjöld.
 
Viðkomandi þarf að óska formlega eftir þessu við sína deild - og undirrita samning þar að lútandi.