Við hvetjum nemendur við LHÍ að kynna sér möguleika til skiptnáms og starfsnáms í gegnum Erasmus+ áætlunina. 

Í frétt á vef Erasmusplus um áætlunina kemur fram að "nýverið var birt miðmat á Erasmus+ áætluninni og forverum hennar, en áætlunin varir frá 2014-2020. Matið var mjög umfangsmikið og byggir á skýrslum frá öllum þátttökuríkjunum, mati frá óháðu matsfyrirtæki sem tók mikinn fjölda viðtala og loks voru rýnd svör meira ein milljón þátttakenda Erasmus+. 

Matið dregur upp mjög jákvæða mynd af Erasmus+ áætluninni og er ávinningurinn fyrir þá einstaklinga sem taka þátt mjög skýr. Á þeim tíma sem matið tók til nutu ríflega 4 milljónir einstaklinga stuðnings frá áætluninni sem er sú lang stærsta í heiminum. Almenningur telur að Erasmus+ sé einn jákvæðasti þátturinn við samrunaþróun í álfunni.

Framkvæmdastjórn ESB hefur þegar tekið tillit til þess sem fram kemur í matsskýrslunni og hefur kynnt hugmyndir um evrópskt menntasvæði – European Education Area – þar sem lögð verður áhersla á að æ fleiri nemendur verði á faraldsfæti milli landa. Lögð verður áhersla á að fjölga nemendum á framhaldsskólastigi, starfsnámsnemum og þeim sem búa við færri tækifæri. Gera má ráð fyrir að þegar kynntar verða fyrstu tillögur að arftaka Erasmus+ áætlunarinnar síðar á þessu ári verði lögð áhersla á að ná til sem enn fleiri og auka heildarfjölda þátttakenda.

Opið er fyrir umsóknir um skiptinám til og með 1. mars n.k. 

Við bendum á að Alma Ragnarsdóttir verður með kynningu á skiptinámi á opnu húsi LHÍ laugardaginn 3. mars kl. 12:00 í húsnæði skólans við Laugarnesveg 91. Með henni verða nemendur sem segja frá sinni upplifun af því að fara í skiptinám.