HOLLNEMAFÉLAG LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS

Frá leikmanni til fagmanns

Líf að loknu námi í Listaháskóla Íslands

Haldið verður listapjall á vegum Hollnemafélags Listaháskólans, þriðjudaginn 26. september kl. 20.00 í Mengi, Óðinsgötu 2, 101 Reykjavík.

Bjarki Bragason, myndlistarmaður ætlar að spjalla við fjóra útskrifaða nemendur skólans um líf að loknu námi, hindranir og ávinninga.

Gestir í listaspjalli eru:

Gunnar Hansson, sviðslistir.
Jóní Jónsdóttir, myndlist og listkennsla.
Sóley Stefánsdóttir, tónlist.
Sindri Páll Sigurðsson, hönnun og arkitektúr.

Listaspjall og léttar veigar.

Allir velkomnir!

- Hönnun veggspjalds var í höndum Kjartans Hreinssonar nemanda á 2. ári í grafískri hönnun. 

listaspjallan.jpg