Fyrir hver er námskeiðið: Námskeiðið hentar fyrir þau sem vilja tileinka sér tækni til framburðar tungumála. Námskeiðið er valnámskeið á BA stigi tónlistardeildar.
 
Nauðsynlegt er að öll þau sem syngja eða flytja texta á íslensku hafi grunnþekkingu á hljóðkerfisreglum íslenskunnar. Sú þekking er forsenda þess að geta sungið eða flutt texta á vönduðu íslensku máli og borið fram erlend tungumál án íslensks hreims. Mikilvægt er að þekkja hið alþjóðlega kerfi IPA og geta skráð og lesið úr hljóðfræðitáknum.
 
IPA hljóðritunarkerfið er kynnt, ítarlega fjallað um hljóðkerfi íslenskrar tungu, myndun hljóða og framburðröddun, brottföll og samlagnir, vandaðan og óvandaðan framburð, oföndun, mállýskur og fleira er tengist framburði.
 
Námsmat: Símat, skrifleg verkefni.
 
Kennari: Þórður Helgason.
 
Staður og stund: Skipholt 31, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 08:30 - 10:10.
 
Tímabil: 9. -30. janúar og 1. - 13. febrúar 2018.
 
Einingar: 2 ECTS.
 
Kjósi nemendur að taka námskeið án eininga gefur kennari verkefnum nemenda ekki endurgjöf. Verðmunur ræðst þ.a.l. af auknu vinnuálagi kennara.
 
Námskeið sem tekin eru án eininga geta þó skráðst, án eininga, á námsferil nemenda.
 
Verð: 30.500 kr. (án eininga) – 40.800 kr. (með einingum).
 
Forkröfur: Námskeiðið er ætlað söngvurum.
 
Nánari upplýsingar:  Elísabet Indra Ragnarsdóttir, verkefnastjóri tónlistardeildar. indra [at] lhi.is.