Dagskrá Hugarflugs er nú komin í loftið, sneisafull af áhugaverðum gjörningum, innsetningum, vinnusmiðjum og fyrirlestrum um minni, sem er ráðstefnuþemað í ár.
Hugarflug hefst fimmtudagskvöldið 2. mars kl. 17 með
opnunarerindi bandaríska myndlistarmannsins Charles Gaines,
Manifestos.
Í kjölfarið flytja Berglind María Tómasdóttir og Lilja María Ásmundsdóttur
opnunarverk ráðstefnunnar,
Variations II eftir John Cage, fyrir Lokk og Huldu.
Dagskráin heldur svo áfram föstudaginn 3. mars kl. 9-18, þar sem yfir 50 listamenn, hönnuðir og fræðimenn fjalla um minni út frá fjölbreyttum sjónarhornum og í gegnum ólíka miðla.
Kynnið ykkur
dagskrána hér, en ráðstefnan fer fram í Laugarnesinu báða dagana.
Ráðstefnan er opin öllum og ekki er þörf á að skrá sig.