Fyrir hverja er námskeiðið: Starfandi tónlistarkennara sem vilja bæta kennslufræðilegan grunn sinn og tónlistarfólk með BA gráðu eða sambærilega menntun
Fjallað er um þróun og stöðu tónlistarkennslu í íslensku skólakerfi. Ólíkar nálganir, hugmyndafræði og helstu aðferðir í faginu eru skoðaðar og frumkvöðlar á því sviði kynntir. Fjallað er um innihald aðalnámskrár tónlistarskóla auk þess sem fengin er innsýn í námskrá tónmenntar í grunnskóla. Áhersla er lögð á mikilvægi markmiðssetningar í kennslu og kynntar fjölbreytilegar kennsluaðferðir ásamt gerð náms- og kennsluáætlana og ólíkra námsmatsaðferða. Námskeiðið er á meistarastigi.
Námsmat: Símat og verkefni.
Kennari: Kristín Valsdóttir umsjón
Staður og stund: Laugarnesvegur, mánudaga og miðvikudaga kl. 09:20-12:10
Tímabil: 3. febrúar - 28. apríl 2017. Kennsluhlé: 27. febrúar-13.mars
Forkröfur: BA gráða eða sambærilegt tónlistarnám
Verð: 120.000 (án eininga) / 150.000 (með einingum)
Nánari upplýsingar: Elín Anna Ísaksdóttir, verkefnastjóri tónlistardeildar: elinanna [at] lhi.is