Ásgerður Guðrún Gunnarsdóttir hefur verið ráðin lektor í sviðslistafræðum við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands.

Ásgerður hefur m.a. starfað sem dramatúrg, verið listrænn stjórnandi Reykjavík Dance Festival og The Festival og var meðstofnandi og stjórnandi sviðlistahátíðarinnar artFart. Af akademískum störfum Ásgerðar má nefna að hún hefur kennt sviðslistafræði við Listaháskólann frá árinu 2013 og verið aðjúnkt og fagstjóri fræða við sviðslistadeild skólans frá hausti 2015. Auk kennslunnar hefur Ásgerður sem fagstjóri komið að stefnumótun og uppbyggingu náms við sviðslistadeild.

Ásgerður hefur fest sig í sessi sem viðurkenndur lista- og fræðimaður á innanlandsvettvangi auk þess að hafa víðfeðmt alþjóðlegt tengslanet og góða þekkingu á straumum og stefnum í samtímasviðslistum.

Greinar eftir Ásgerði hafa birst í alþjóðlegum tímaritum sem gera strangar kröfur.

Ásgerður hefur lokið meistaragráðu í dans- og leikhúsfræði frá Háskólanum í Utrecht, meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands, BA gráðu í fræði og framkvæmd frá Listaháskóla Íslands og diplómanámi í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands.