Heimurinn tilheyrir öllum, ekki fáum útvöldum er yfirskrift samsýningar átta nemenda á meistarastigi við Listaháskóla Íslands. Þessu samstarfsverkefni og sýningu nemenda á fyrra ári meistaranámsbrautar í myndlist við Listaháskóla Íslands verður hleypt af stokkunum á laugardaginn næstkomandi, 28. nóvember, kl. 16 í Nýlistasafninu við Völvufell 13-21 í Breiðholti. Gengið er inn bakatil.

Sýningin stendur til 6.desember 2015

Útgangspunktur sýningarinnar er sú umgjörð sem Nýlistasafnið lagði til, bæði í menningarlegu tilliti safneignar þess og sögu, sem og staðháttum og nærumhverfi safnsins í Breiðholti. Spurt er um miðju og útjaðar menningar; hvort hin virka innspýting og hreyfiafl í listsköpun sé ef til vill að finna á jaðrinum eins og í miðborginni.   Er Völvufellið ef til vill meiri miðja en Lækjartorg? Fyrir hverja er myndlistin og hvert sækir hún sín áhrif? Dregin hafa verið fram óþekkt höfundaverk í safneign Nýlistasafnsins til samtals við nýjan höfund, hverfið hefur verið kortlagt í gönguferðum, það sem er fyrir utan hefur verið flutt inn og rými safnsins fengið nýjan ljóma og litatón. Gólfflísarnar á aðalhæðinni sem áður hýsti víðfrægt bakarí hverfisins, kallast nú á við lífrænar teikningar, hringlaga form og skuggaleik á veggjum. Alls staðar og allt um kring svífur saga Nýló; saga hræringa og framsækinnar myndlistar á Íslandi í 37 ár.

Höfundar verka eru þau Aimee Odum, Ásgrímur Þórhallsson, Florence So-Yue, Giampaolo Algieri, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Jens Michael Muhlhoff, Myrra Leifsdóttir og Ragna Fróðadóttir. Sýningin var unnin undir leiðsögn myndlistarmannanna Elínar Hansdóttur og Ingólfs Arnarssonar.