Opnað hefur verið fyrir skráningu í opin námskeið listkennsludeildar á vormisseri 2016. Boðið verður uppá fjölbreytt úrval námskeiða á meistarastigi sem eru opin öllum sem eru með grunnháskólagráðu í listum, hönnun eða kennslu.

Starfandi listgreinakennarar eru sérstaklega hvattir til að sækja námskeiðin sem henta vel til símenntunar listgreinakennara. Sex ný námskeið eru í boði í vor og hægt er að taka námskeið með eða án eininga.

Námskeið sem í boði verða vorið 2016

  • Heimspeki menntunar, 6 einingar.
  • Listir og fjölmenning, 4 eða 6 einingar. NÝTT.
  • Listræn menningarstjórnun, 6 einingar. NÝTT.
  • Aðferðir leiklistar í kennslu, 4 einingar.
  • Fab-lab í skólastarfi, 4 einingar. NÝTT.
  • Barna og unglingakór, 2 einingar.
  • Textíll sem listaverk, 2 einingar. NÝTT.
  • Rafmögnuð tónlist og upptökur, 2 einingar.
  • Listmeðferð í námi II, 6 einingar. NÝTT.
  • Myndlist fyrir kennara ungra barna, 2 einingar. NÝTT.
  • Frá vinnustofu í kennslustofu, 2 einingar.

Kennarar eru allir leiðandi á sínu sviði og koma bæði úr röðum kennara við Listaháskóla Íslands og af vettvangi.

Nánari upplýsingar um námskeiðin eru hér.

Umsóknareyðublað er að finna hér.

Upplýsingar um verð námskeiða er hér.

Nánari upplýsingar veitir gunndis [at] lhi.is (Gunndís Ýr Finnbogadóttir)