42 nemendur útskrifast frá hönnunar- og arkitektúrdeild. Myndlistardeild útskrifar 27 nemendur í ár, frá tónlistardeild útskrifast 27 nemendur, listkennsludeild útskrifar 15 nemendur. Sviðslistadeild útskrifar aðeins einn nemanda af sviðshöfundabraut en sviðslistadeild tekur ekki inn og útskrifar ekki nemendur þriðja hvert ár.

6 nemendur útskrifast með diplómagráðu, 79 með bakkalárgráðu og 27 nemendur útskrifast með meistaragráðu. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem skólinn útskrifar nemendur með meistaragráðu í myndlist og hönnun.