Hátíðin nefnist Holqa og er haldin á Möltu. Er þetta í sjöunda
skiptið sem hátíðin er haldin en í fyrsta skiptið sem íslenskur
framhaldsskóli tekur þátt í henni.
Verðlaunin sem íslenski hópurinn hlaut nefnast Scripting and
Structure Award, þ.e. verðlaun fyrir handrit og uppbyggingu.
Sýning skólans byggði á sögunni um Fjalla-Eyvind og hópurinn
sjálfur bjó til leikgerðina.
Í umsögn dómnefndar segir að sýningin hafi verið vel uppbyggð
þar sem sagan hafi verið skýr og mismunandi leikhússtílar voru
notaðir. Einnig var þeim hrósað fyrir góða líkamsbeitingu og að
líkamstungumál hafi verið til fyrirmyndar.
Hópurinn hélt utan til Möltu síðastliðinn sunnudag en þangað komu
einnig skólar frá sex löngum. Allir skólarnir sýndu leikverk frá
sínu landi.
Bjarni Snæbjörnsson útskrifaðist sem leikari frá leiklistarbraut LHÍ
árið 2007 og með diplóma listkennslu frá listkennsludeild LHÍ 2011. Hann
hefur kennt leiklist víða um land við ólík tækifæri frá útskrift úr
leikaranáminu; í grunnskólum, hjá Leynileikhúsinu og víðar. Þá var hann
einn af stofnendum leiklistarbrautar Fjölbrautaskólans í Garðabæ og
hefur kennt við þann skóla frá hausti 2008. Einnig hefur hann leikstýrt
fjölda sýninga með börnum og unglingum og tekið þátt í uppsetningum
leikverka hjá Borgarleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu og sjálfstæðum leikhópum
sem leikari. Bjarni hefur verið stundakennari við listkennsludeild síðustu tvö skólaár.