Afrakstur þeirrar vinnu birtist nú í innsetningum sem nemendur hafa sjálfir smíðað og nota til að magna upp stemningu eða getu á þeim stöðum sem þau eru að vinna með.   Hóparnir unnu með upplifunarferli barna, samskipti kanína og manna, strekkiþörf hlaupara, leyndar lausagöngur hundaeigenda og trjáhús klifrarans.  Verkin standa einungis í Öskjuhlíðinni í örfáa daga.