Ingibjörg er starfandi kennslustjóri Heilbrigðisvísindasviðs HÍ, en var áður verkefnisstjóri á Hugvísindasviði HÍ. Hún hefur einnig sinnt stundakennslu í Deild erlendra tungumála og í Sagnfræði- og heimspekideild. Ingibjörg starfaði um nokkurra ára skeið innan leiklistargeirans áður en hún sneri sér að starfi innan háskólans.

Ingibjörg er með meistarapróf í Mennta- og menningarstjórnun og bakkalárpróf í leiklist.
Listaháskólinn býður Ingibjörgu velkomna til starfa.