Umræðurnar fara fram í Hráa sal sviðslistadeildar LHÍ við Sölvhólsgötu 13, kl. 20:00 - 22:30.

Umræðukvöldin eru samstarf sviðslistadeildar LHÍ og fagfélaga sviðslista og eru hugsuð sem innlegg í umræðuna um listrannsóknir og rannsóknartengt nám í listum en innan skamms mun LHÍ hefja meistaranám í sviðslistum. 

Hugmyndin er að skoða rannsóknina af gólfinu og ræða rannsóknir útfrá mismunandi greinum innan sviðslistanna. Fyrst verður sjónum beint að þeim sem standa á sviðinu; flytjandann, leikarann, dansarann, söngvarann. 

Til að ræða rannsóknir flytjandans koma þau Árni Pétur Guðjónsson, leikari, Ásgerður Gunnarsdóttir, sviðslistakona og listrænn stjórnandi RDF, Ásgerður Júníusdóttir, söngkona, og Margrét Bjarnadóttir, dansari og danshöfundur en umræðustjóri verður Rúnar Guðbrandsson. 

Þau munu velta fyrir sér spurningum á borð við: Getur flytjandinn gert rannsókn uppá eigin spýtur? Hvað og hvernig rannsakar leikarinn/dansarinn?  Hvernig getur söngvarinn/dansarinn/leikarinn stundað rannsóknir í hefðbundnum verkefnum? Hvernig eru niðurstöður birtar? 

Fyrri hluta kvölds verða umræðurnar í formi spekingar spjalla þar sem pallborðið ræðir saman undir stjórn umræðustjóra en síðari hluti kvölds verða umræðurnar fluttar yfir í salinn.