Ráðstefnuna sækja listamenn og fræðimenn frá ýmsum löndum og fjalla um listir og ritlist frá ótal sjónarhornum, en þema ráðstefnunnar að þessu sinni er listin að vera á milli (The Art of Being In-Between).

Aðalfyrirlesari er hin heimskunna Amy Tan, höfundur bókanna Leikur hlæjandi láns og Kona eldhúsguðsins sem notið hafa mikillar hylli hvar sem þær hafa komið út. Amy Tan á sér stóran lesendahóp á Íslandi og er það sérstakt fagnaðarefni að fá hana hingað til lands. Amy Tan mun flytja erindi og svara spurningum áhorfenda í Silfurbergi í Hörpu, föstudaginn 19. september kl. 20. Miðaverð er 2000 krónur og fer miðasala fram á Auk þess verða bækur Amy Tan til sölu fyrir og eftir fyrirlesturinn.

Aðrir lykilfyrirlesarar eru Roger Allen (sérsvið: arabískar bókmenntir og þýðingar), Matthew Rubery (sérsvið: lestrarvenjur, hljóðbækur, blindraletur) og David Spurr (sérsvið: samanburðarbókmenntir, m.a. með áherslu á arkitektúr í bókmenntum).

Listamannaþríeyki, sem samanstendur af Bjarka Bragasyni, Claudiu Hausfeld og
Hildigunni Birgisdóttur, mun flytja opnunarerindi ráðstefnunnar fimmtudaginn 18. september. Fjallar það um skilgreiningar á eiginleikum hluta og ólíkar leiðir til að rannsaka stað. Verk þeirra er hægt að sjá í Hverfisgalleríi til 4. október 2014.

Erindin á ráðstefnunni eru afar fjölbreytt og fara fram í átján málstofum. Fjallað verður um tónlist, teiknimyndasögur, bíómyndir, videólist, myndlist og gjörningalist, þýðingar, bókmenntir og náttúru á breiðum grunni auk þess sem boðið verður upp á listgjörninga.

Í gjörningahluta ráðstefnunnar verður ráðstefnugestum meðal annars boðið að fara ofan í holu íslenskra fræða í fylgd Töfrafjallsins, en það er hópur skipaður bæði listamönnum og fræðimönnum, og upplifa þar nýja og óvænta sýn á íslenskan veruleika.

Á meðal fræðilegra erinda má nefna umfjöllun um Múmínálfana, erindi um persónu Sögu Norén í norrænu spennuþáttunum Brúnni og samanburð á kvikmynd Wim Wenders, Wings of Desire, og ljóðum Rainers Maria Rilke.

Dagskrána má nálgast í heild sinni á vef ráðstefnunnar, , og þar er einnig að finna upplýsingar um skráningu á ráðstefnuna.

Það eru Norræna húsið, Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og Konfúsíusarstofnun Norðurljós sem styðja við ráðstefnuna og heimsókn Amy Tan til Íslands.