Stjórn Listaháskóla Íslands boðar til ársfundar í tónlistarsal skólans, Sölvhóli, við Sölvhólsgötu fimmtudaginn 20. nóvember nk. Fundurinn hefst kl. 16. Á fundinum kynna stjórnendur skólans starfsemi hans og rekstur fyrir tímabilið 01.08.2013–31.12.2013. Verið er að breyta uppgjörsári frá skólaárum yfir í almanaksár og verður fundurinn því með óhefðbundnu sniði að þessu sinni. Stefnt er á að halda ársfund fyrir almanaksuppgjörsárið 2014 í mars 2015.