Árlega eru um 800 milljón tonn af áli framleidd á Íslandi (þar sem orka til framleiðslu kemur úr vatnsaflsvirkjunum). Stór hluti framleiðslunnar er fluttur úr landi sem hráál til frekari meðhöndlunar og framleiðslu.

Á ráðstefnunni verður m.a. leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
Hvaða möguleikar felast í frekari framleiðslu á áli hér á landi fyrir íslensk fyrirtæki?
Hvernig mætti nýta íslenska álframleiðslu sem drifkraft til nýsköpunar? 

Dagskrá

Kl. 13:00-13:15 | Ráðstefnan sett
Pétur Blöndal forstjóri SAMÁL og fundarstjóri ráðstefnunnar býður gesti velkomna.

13:15 | Kynning á verkefninu 13Al+
Garðar Eyjólfsson og Dag Holmgren, verkefastjórar 13Al+
Garðar Eyjólfsson hönnuður og er jafnframt aðjúnkt við Listaháskóla Íslands. Dag Holmgren er hönnuður og professor í iðnhönnun við Jönköping School of Engineering. 

13:30 | Nýsköpun og hönnun sem drifkraftur í viðskiptum
Jan Stavik, framkvæmdastjóri hönnunarráðs í Noregi
Jan Stavik hefur gengt stjórnunar- og markaðsstörfum fyrir norsk og alþjóðleg fyrirtæki á borð við Univelever, Coca-Cola, Royal Caribbean Cruise Line og EAC-KiMS Ltd. (Malasíu). Stavik álítur hönnun sem drifkraft í nýsköpun og viðskiptum.

14:00 | Umhverfisvæn álframleiðsla á Íslandi
Rosa Garcia Pineiro, framkvæmdastjóri umhverfis-, heilbrigðis- og öryggismála í frumframleiðslu Alcoa.
Rosa Garcia Pineiro ber ábyrgð á Íslandi sem framleiðslusvæði. Alcoa sem er þriðji stærsti álframleiðandi í heimi rekur Fjarðarál, Reyðarfirði. 

14:30 | Kaffihlé 

15:00 | Ál sem efniviður í hönnun
Johannes Torpe, hönnuður og listrænn stjórnandi Bang & Olufsen
Johannes Torpe er einn af fremstu hönnuðum Dana. Torpe er þekktur fyrir djarfa, frumlega og framúrstefnuleg hönnun sem spannar frá grafískri hönnun til innanhús- og húsgagnahönnunar. Torpe starfar bæði á vinnustofu sinni í Beijing og sem listrænn stjórnandi hjá Bang & Olufsen, þar sem hann notar ál í framleiðslu á hágæða sjónvarps og hljómflutningstækjum 

15:30 | Samantekt – Efniviður, ferli, iðnaður
Hans Reich, framkvæmdastjóri Production Leap
Hans Reich rekur Production Leap, þróunarverkefni fyrir minni og meðal stór fyrirtæki sem byggir á hugmyndarfræði um Lean production aðferðafræði sem byggir á þeirri hugmynd að horfa fram hjá öllu nema því sem skiptir verulegu máli og viðhalda verðmætum með minni vinnu. Reich hefur starfað fyrir bílaframleiðendur á borð við Saab og Volvo, einnig hefur Reich starfað sem fagstjóri við Chalmers tækniháskólann í Gautaborg.

16:00 | Panelumræður
Þátttakendur: Jan Stavik, Rosa Garcia Pineiro, Johannes Torpe, Hans Reich og Garðar Eyjólfsson 

16:30 | Mótttaka og opnun á 13Al+ sýningunni
Á sýningunni verða frumgerðir hönnuðunna sem tóku þátt í 13Al+ verkefninu. Þeir eru Sigga Heimis, Katrín Ólína, Snæbjörn Stefánsson, Garðar Eyjólfsson og Þóra Birna.

Fundarstjóri: Pétur Blöndal, forstjóri SAMÁL

Nánari upplýsingar má nálgast hjá verkefnastjórum 13Al+ Garðari Eyjólfssyni og Dag Holmgren

13Al+ er sam-norrænt og þverfaglegt samstarfsverkefni á milli íslenskra hönnuða og sænskra álframleiðslufyrirtækja sem hófst 2012 og gengur útá að skoða frekari möguleika sem felast í álframleiðslu á Íslandi.

Fimm íslenskir hönnuðir Sigga Heimis, Þóra Birna, Snæbjörn Stéfánsson, Garðar Eyjólfsson og Katrín Ólína fóru til Möbelriket og Design Region Småland í Svíþjóð þar sem þau öðluðust frekari verkkunnáttu á áli. Þá þekkingu nýttu hönnuðurnir síðar í samstarfi við íslenska og sænska framleiðendur. 

Fyrstu eintök af vörum hönnuðana voru kynntar á Stockholm Design Week 2013 og síðar á HönnunarMars 2013. Ráðstefna þessi er síðasti áfangi verkefnisins.