Baldur Pálsson, fræðslustjóri Seltjarnarnessbæjar, heldur opinn fyrirlestur í Laugarnesi föstudaginn 8. febrúar. 

 

Miðlun siðferðislegra gilda í skólastarfi

 
Í fyrirlestrinum verður fjallað um hlutverk skóla við miðlun siðferðislegra gilda með áherslu á ábyrgð og skyldur kennara og stjórnenda.
 
Rætt verður um mikilvægi umræðu um siðferðisleg gildi og árangursríkar leiðir við miðlun þeirra.
 
Opnir fyrirlestrar í Laugarnesi fara fram á vorönn 2019 á vegum listkennsludeildar, myndlistardeildar og sviðslistadeildar.
 
Fyrirlesturinn, sem stendur frá kl. 13-13.50, er opinn og eru öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.