Misbrigði IV
Fyrri hluti: Tískusýning
 
Verkefnið Misbrigði er unnið af nemendum í fatahönnun á 2. ári við Listaháskóla Íslands í samstarfi við Fatasöfnun Rauða kross Íslands. Rannsakaðar eru leiðir til að skapa nýjan fatnað úr ósöluhæfum flíkum með þekkingu og aðferðafræði hönnunar. Sjónum er beint að tísku á Íslandi í tengslum við sjálfbærni.
 
Ljóst er að endurvinnsla mun spila veigamikið hlutverk í framtíðinni. Það að draga þurfi úr framleiðslu og breyta aðferðum þarf hinsvegar ekki að koma niður á sköpunargleðinni. Þvert á móti munum við hafa enn meiri þörf fyrir sköpun og þekkingu. Óhófleg neyslumenning og stuttur líftími textíls gerir tísku- og textíliðnaðinn mjög óumhverfisvænan. Þessu má breyta meðal annars með því að glæða gömul klæði og efni nýju lífi og vinna með þau á skapandi hátt.
 
Nemendurnir sem sýna í ár eru sjö:
Angele Morel
Birgitta Björt Björnsdóttir
Carl Madsen
Gunnfríður Katrín Tómasdóttir
Isabella Lopez Molina
Sædís Ýr Jónasdóttir
Tranova Tra Vinh
 
Tískusýningin verður 14. mars í leikhúsrými Listaháskóla Íslands Laugarnesvegi 91, gengið inn um listkennsluinngang.