Melur mathús, aðeins þetta eina kvöld.
12. desember 2019, 18:00 - 21:00. 8900kr.-

 
Kjartan Óli Guðmundsson hönnuður og matreiðslunemi og Signý Jónsdóttir vöruhönnuður, útskrifuðust úr vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands í vor. Þau standa fyrir viðburði ásamt Sveini Steinari Benediktssyni mastersnema í hönnun við Listaháskóla íslands á Listasafni Reykjavíkur. Viðburðurinn er framhald af rannsóknarverkefni Signýjar og Sveins á vegum Rannís þar sem möguleikar melgresis voru skoðaðir og lokaverkefnis Kjartans í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands þar sem spurningunni hvernig bragðast staður var varpað fram.
 
Íslenska melgresið er vel þekkt gras sem fyrir mörgum er tákn um seiglu. Hvernig getur svartur sandur alið svo gróskumikinn gróður? Melgresi og fjölbreytt nýting þess birtist í ýmsum myndum á heimilum fólks og nærumhverfi á öldum áður. En hvað hefur það upp á að bjóða nú á tímum?
Þetta eina kvöld opnar mathús þar sem gestum býðst að kynnast melgresi og möguleikum þess í gegnum skilningarvitin fimm. Gestir fá að sjá, bragða, drekka, lykta og snerta. Staðnum verður lokað eftir að uppákomunni lýkur.
Fjögurra rétta kvöldverður plús drykkur og hin fjögur skilningarvitin verða ekki skilin útundan. Miðapöntun í gegnum netfangið signyjonsdottir [at] gmail.com eða í síma 866 8290. Möguleiki er á vegan útfærslu. Athugið! Takmarkað sætaframboð.
 
Hafnarhúsið
Tryggvagata 17
101 Reykjavík