Loksins Loksins
sýning 3 árs nema í grafískri hönnun

 
Föstudaginn 1. október klukkan 17:00 opna nemendur á þriðja ári í grafískri hönnun við LHÍ sýninguna Loksins Loksins  þar sem afrakstur námskeiðisins „Verksmiðjan“ verður sýndur. Á námskeiðinu hafa þau unnið að heildarútliti fyrir ýmsar stofnanir og fyrirtæki. Sýningin fer fram í matsal Listaháskólans við Þverholt 11, gengið er inn um aðalinngang og þaðan inn í matsalinn á fyrstu hæð.  
 
Nemendur eru Auður Ómarsdóttir, Ásdís Hanna Guðnadóttir, Billa Jenny Jónleifsdóttir, Embla Dröfn Óðinsdóttir, Guðni Þór Ólafsson, Hólmfríður Benediktsdóttir, Ingi Vífill Guðmundsson, Jakob Hermannsson, Jóhanna Guðrún Jóhannsdóttir, Katla Einarsdóttir, Lóa Yona Zoé Fenzy, Maríanna Björk Ásmundsdóttir, Ólafur Alexander Ólafsson, Patrekur Björgvinsson, Ragnhildur Ásgeirsdóttir, Rakel Gróa Gunnarsdóttir, Sigrún Hanna Ómarsdóttir Löve, Sigrún Karls Kristínardóttir og Þórir Georg Jónsson 
 
Kennari á námskeiðinu er Arnar Freyr Guðmundsson
 
Við minnum á 1 metra reglu og grímuskyldu.