Barnamenningarhátíð 25. – 30. apríl 10-17, Þjóðminjasafnið
 
Börnin sem teiknuðu myndirnar á sýningunni hafa flúið ásamt fjölskyldum sínum erfiðar aðstæður og stríð í heimalandi sínu og sækjast eftir alþjóðlegri vernd á Íslandi.
 
Sýningin byggir á listasmiðju sem myndlistarkonan Ásdís Kalman, sem einnig er nemandi við listkennsludeild LHÍ, stýrði í samstarfi við Rauða krossinn á Íslandi og Þjóðminjasafn Íslands. Sýningin er einnig hluti af meistaraverkefni Ásdísar. 
 
Markmiðið með smiðjunni var þríþætt:
 
- Að virkja og hvetja unga hælisleitendur til að tjá sig myndrænt, án orða, en flest barnanna tala önnur tungumál en íslensku eða ensku.
 
- Að bjóða þeim að taka þátt í Barnamenningarhátíð, með því að setja upp þessa sýningu.
 
- Að gera börnin sýnilegri í nærsamfélaginu. Vonast er til að gestir fái örlitla innsýn í hagi barnanna og áhuga á að vita meira um málefni barna á flótta.