Útskriftarhátíð LHÍ: Gísli Magna
Hvers vegna sækir fólk í það að syngja í kór?
Hvað gerir söngurinn fyrir mann?
Hvernig bætir kórsöngur líf manns?
Þessum spurningum og fleiri er velt fram í litlu ferðalagi í gegnum kórheim nokkurra kvenna úr Léttsveit Reykjavíkur.
Viðburður þessi er lokahnykkurinn í alþjóðlegu mastersnámi Gísla Magna við Listaháskóla Íslands í Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi (NAIP) við tónlistardeild LHÍ.
Viðburðurinn fer fram þriðjudagskvöldið 6. ágúst í Háteigskirkju kl. 19.
Öll hjartanlega velkomin.
