Sláðu inn leitarorð
Tónlist
Masterclass with Karita Mattila
A master class with Karitta Mattila, Friday, March 16th from 2:30pm - 5:30pm at Snorrabúð, Snorrabúð 54. In collaboration with Reykjavík Vocal Conservatory (Söngskólinn í Reykjavík).
The lyric beauty of Karita Mattila’s voice and her innate sense of theatre have set her apart as one of the most sought-after dramatic sopranos in the world today.
Bachaðu þig upp! Bachófónía í Hörpu
Elskarðu Bach? Ertu að æfa Bach? Hefur þig dreymt um æfa Bach? Komdu þá og taktu þátt í einstakri Bachófóníu í Hörpu á alþjóðlega Bachdeginum.
Bartók-hátíð í Listaháskólanum og Menntaskóla í tónlist
Nemendur tónlistardeildar LHÍ og MÍT halda Bartók-hátíð helgina 17. - 18. mars næstkomandi. Fjölbreytileg tónlist eftir ungverska tónskáldið og þjóðlagasafnarann hljómar í meðförum ungra tónlistarmanna í Kirkju óháða safnaðarins á tvennum tónleikum sunnudaginn 18. mars en að auki mun ungverski píanóleikarinn Péter Kiss halda opna masterklassa og fjalla um tónlist Bartóks í tónleikafyrirlestri laugardaginn 17. mars. Bartók var frábær píanóleikari og brautryðjandi á sviði þjóðlagasöfnunar auk þess að vera eitt atkvæðamesta tónskáld Ungverjalands fyrr og síðar.
COW #4 / Tónleikar í Mengi
Tónleikaröðin COWs samanstendur af þrennum tónleikum sem fara fram á vormisseri 2018 í Mengi. Á tónleikunum verður flutt tilraunakennd tónlist af ýmsum toga eftir tónskáldin Jennifer Walshe, Morton Feldman, Carolyn Chen auk fleiri.
Tónleikafyrirlestur í tilefni 100 ára afmælis Lettlands
Lettneski píanóleikarinn og tónlistarfræðingurinn Dzintra Erliha fjallar um í tali og tónum um lettneska píanótónlist í tilefni hundrað ára afmælis Lettlands. Við sögu koma lettnesku tónskáldin Lūcija Garūta, Janis Medins, Janis Ivanovs, Aivars Kalejs, Peteris Vasks og Santa Buss sem Dzintra mun greina frá og leika tónlist eftir.
Tónleikafyrirlesturinn fer fram föstudaginn 16. mars í flyglasal tónlistardeildar LHÍ, Skipholti 31, frá 12:30 - 14:00. Allir eru hjartanlega velkomin og aðgangur ókeypis.
Masterklass með Robertu Cunningham
Föstudaginn 9. mars klukkan 14:30 heldur bandaríska óperusöngkonan og -kennarinn Roberta Cunningham masterklass við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Masterklassinn fer fram í flyglasal í húsnæði tónlistardeildar LHÍ, Skipholti 31. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
RíT - Singing with Nature: Samband tónlistar, menningar og náttúru
Föstudaginn 9. mars fer fram í tónlistardeild LHÍ málstofa á vegum Rannsóknarstofu í tónlist undir yfirskriftinni Þræðir - Singing with Nature: Samtal um samband tónlistar, náttúru og menningar. Fram koma norski tónlistarfræðingurinn Tore Størvold, bandaríski tónlistarfræðingurinn Michelle Kisliuk og bandaríska tónskáldið og fræðimaðurinn Erik DeLuca en þau beina öll sjónum sínum að sambandi tónlistar og náttúru í sínum erindum.